Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

19.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur á Akureyri í 2. flokki

Akureyri hafði unnið deildarleikinn á Selfossi í desember með því að komast einu sinni yfir í leiknum á loka mínútunni og "stela" stigunum sem voru þá í boði. Liðin mætust svo í undanúrslitum Bikarkeppninnar í lok febrúar og þá unnu heimamenn sannfærandi 7 marka sigur, 37-30.  

Það var augljóst í byrjun að bæði lið voru eitthvað spennt því að mikið gekk á. Hraðinn var meiri en liðin réðu við, mikið var skotið í markstangirnar og mistök gerð. Leikurinn hélst þó jafn fram eftir hálfleiknum og liðin skiptust á að leiða með 1 marki. Þegar um 10 mín. voru til hálfleiks í stöðunni 13-12 fyrir Akureyri var Atla Hjörvari skipt inná og við það skellti Selfoss liðið í lás. Vörn og markvarsla var frábær á þessum kafla og gerði það að verkum að Selfoss leiddi í hálfleik með 5 mörkum 13-18. Selfoss hafði þá skorað 6 mörk á móti engu.

Það var augljóst að leikmenn Selfoss liðsins ætluðu ekki að láta bikarleikinn endurtaka sig þegar þeir misstu leikinn úr höndunum í byrjun síðari hálfleiks. Þess í stað var bætt í og Akureyri aldrei gefið tækifæri til þess að spila sig aftur inn í leikinn. Mestur varð munurinn 8 mörk u.þ.b. 10 mín. fyrir leikslok, en lokaatlaga Akureyrar var hörð og náðu þeir að minnka muninn mest niður í 4 mörk þegar um 5 mín. voru til leiksloka. En lengra komust þeir ekki og niðurstaðan var frábær útisigur á erfiðasta útivelli landsins og í ofanálag á móti verðandi deildarmeisturum 2. flokks. Lokatölur urðu 31-38 fyrir Selfoss.

Selfossliðið náði toppleik í 60 mín. að þessu sinni enda dugir ekkert minna í þessum toppleikjum 2. flokks. Sóknarleikur liðsins er orðinn góður enda liðið að skora meira en 30 mörk í leik og eru reyndar farnir að gæla við 40 marka múrinn í síðustu leikjum. Hraðaupphlaupin eru að sama skapi að verða með því besta sem sést á Íslandi. Þá var varnarleikur liðsins frábær að þessu sinni, en hann hefur oft verið akkilesarhæll liðsins í vetur. Að sama skapi átti Birkir alveg magnaðan leik og varði 27 skot. 

Þolinmæðin sem hefur oft verið af skornum skammti hjá Selfossi var að þessu sinni til staðar. Liðið er að venjast því að spila meirihluta leikjanna í vörn og í þetta skipti náðu þeir að halda út. Því til staðfestingar má benda á að Akureyringar náðu 58 skotum á markið og þá eru ekki taldar með sóknir þeirra sem enduðu með skoti, framhjá eða þegar þeir misstu boltann. Það má því áætla að þeir hafi fengið um 65 tækifæri til að skora í leiknum. Þá má einnig nefna það að Selfoss fékk alls 62 tækifæri til að skora þegar allt er talið með. Það er því ljóst að a.m.k. 120 sóknartækifæri urðu til í leiknum. Það má því með sanni segja að 2. flokkur á Íslandi sé ekki bara að spila íþróttina skv. þeim áherslum sem tíðkast erlendis heldur eru gæðin oft á tíðum líka mjög góð. Það er því hægt að stóla á góða skemmtun við það að horfa á 2. flokks leiki á Íslandi.

 

Tölfræði:
Bjarki Már  9 úr 11 og 1 frákast
Gummi  9 úr 14, 2 stoðs., 1 stolinn bolti og 5 brotin fríköst
Raggi  7 úr 15, 3 stoðs., 1 bolta náð, 1 frákast og 11 brotin fríköst
Eyþór  4 úr 6, 1 frákast og 2 brotin fríköst
Helgi  3 úr 3, 5 stoðs., 2 boltum náð, 1 varið skot og 9 brotin fríköst
Einar  2 úr 4, 1 tapaður bolti, 4 fengin víti, 1 varið skot og 10 brotin fríköst
Halli  2 úr 4, 12 stoðs., 1 tapaður bolti og 2 brotin fríköst
Sjóli  1 úr 2, 1 frákast og 2 brotin fríköst
Atli  1 úr 1 og 2 brotin fríköst
Birkir varði 27 skot þar af 1 víti (47%), 1 stoðs. og 1 brotið fríkast
Ástgeir reyndi við 1 víti en varði ekki

Það vekur athygli að Selfossliðið tapar aðeins 2 boltum í leiknum og það fannst Sebastian þjálfara liðsins mjög mikilvægt þegar hann var spurður um það hvað hefði skipt mestu máli í sigrinum:

"Fyrst og fremst frábær liðsheild, einbeiting og það að við erum bara með tvo tapaða bolta í leiknum. Það er meira en að segja það að spila af jafn miklum ákafa og við gerðum á móti svona sterku liði og tapa bara tveimur boltum á 60 mín. Mér finnst ótrúlega gott og mælikvarði á það hversu einbeittir strákarnir mættu í þennan leik."

Næsti leikur í 2. flokki er mánudaginn 30. mars kl. 19:30 á Selfossi á móti FH. Það er annar stórleikur og verðugt verkefni fyrir strákana. Vonandi sér FH sér fært að mæta með sitt sterkasta lið því að það gæti orðið góð skemmtun fyrir áhorfendur. Í FH liðinu eru 12 landsliðsmenn núverandi eða fyrrverandi. Klárlega langbesti mannskapurinn á landinu í þessum aldursflokki.

Áfram Selfoss

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta