Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

23.3.2009 | Handbolti

Selfoss í öđru sćti á Landsbankamótnu

li-logoLandsbankamótið í 5. flokki pilta (fæddir 1995) fór fram á Selfossi um helgina. Alls voru 30 lið skráð til leiks og leiknir 120 leikir í íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsinu Iðu. Mótafyrirkomulag var þannig að leikið var í sex deildum, 1. deild, 2. deild A og B, 3. deild A og B og 4. deild. Efsta liðið fer upp um deild fyrir næsta mót og neðsta liðið fellur. Samanlagður árangur á öllum fimm mótum vetrarins telur svo til íslandsmeistaratitils.

Þetta er sjöunda árið í röð sem Landsbankamótið er haldið á Selfossi. Mikil hefð er komin á mótahaldið og gekk skipulagið mjög vel fyrir sig.

Selfoss strákarnir stóðu sig mjög vel og urðu í 2. sæti í 1. deild  eftir harða baráttu við FH. Þeir Gísli Þór Axelsson og Janus Daði Smárason léku mjög vel í liði Selfoss og áttu stóran þátt í góðum árangri liðsins, enda báðir í unglingalandsliði.

Lið Dímonar frá Hvolsvelli tók þátt í fyrsta skipti og lék í neðstu deild. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu alla sína leiki! Þessi úrslit verða þeim vonandi hvatning til að láta enn frekar til sín taka á handboltavellinum.

6flokkur_nov4_2006

Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta