Lið Selfoss 91 og 92 töpuðu bæði fyrir FH síðasstliðinn föstudaginn. 91 tapaði 29-27 eftir að staðan var 16-14 í hálfleik, en 92 tapaði 34-26 eftir að staðan var 17-13 í hálfleik.
91 liðið hefði átt að hafa sigur en byrjaði leikinn ekki fyrr eftir 15 mínútna leik. FH komst í 8-1 og 12-3 án þess að hafa nokkuð fyrir því. Það tók því mikið á okkar menn að ná leiknum til baka. Selfoss komst marki yfir í seinni hálfleik en FH var sterkara í lokin, fjögur víti voru höfð af okkar derngjum síðustu 10 mínúturnar að mati síðuritara og og áttu Matti, Mási og Árni 8 stangarskot í leiknum sín á milli. Arnar þjálfari sagði síðuritara í stuttu spjalli að Selfyssingar þyrftu að læra af þessu. Menn ættu að skammast sín fyrir hvernig þeir mæta undirbúnir til leiks og það sé ástæða tapsins.
Mörk Selfoss: Árni 9, Steini 6, Matti 4, Andri Már 3, Örn 2, Trausti 2 og Sissi 1. Helgi varði 5 skot og Sverrir 17.
92 liðið náði sér engan veginn á strik og vann FH nokkuð sannfærandi. Selfoss var þó aldrei nema 3-5 mörk á eftir en náði aldrei að ógna Hafnfirðingum almennilega. Vörn Selfoss var götótt og markvarslan slök lengi vel. Þá nýttu menn færin sín illa og gerðu sig seka um klaufaleg mistök. Sem dæmi má nefna einungis voru brotin 8 fríköst í fyrri hálfleik og 3 skot varin. Ekki vænlegt árangurs það.
Mörk Selfoss:
Toni 8, Ingvi 6, Guðbjörn 6, Einar 4, Ketill 2, Kamil 1, Birgir 1 og Erlingur varð 15 skot.
