Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

24.3.2009 | Handbolti

Við ætlum að sjálfsögðu að vinna Aftureldingu

Micael sem spilar á línunni hjá Selfoss kom til félagsins 2006 og er að ljúka sínu 3. tímabili. Áður spilaði hann eitt tímabil með ÍBV. Micael er fæddur í Tékklandi og byrjaði að leika handbolta þar. Hann hefur spilað yfir 10 landsleiki fyrir Tékkland. Við lögðum nokkrar spurningar fyrir hann...

Hvernig hefur verið að búa á Selfossi?
Mjög gott. Mér líkar vel á Selfossi, hér er frábært að vera. Eina sem togar í mig út núna er kærasta mín, en við eigum von á barni í maí.

Hvernig finnst þér handboltinn á Íslandi?
Handboltinn er góður hér þó hann sé kannski ekki alltaf mjög tekniskur. Baráttan hér er meiri en víða annars staðar. Mér finnst slæmt að hér skuli vera tvær deildir. Betra væri ef hér væri bara ein deild.

Hefur þú séð breytingar á Selfossliðinu?
Ungu strákarnir eru miklu betri núna en þeir voru þegar ég kom. Liðið hefur tekið miklum framförum. Stundum vantar þó meiri reynslu til að bregðast rétt við aðstæðum. Stundum höfum við gert mistök út af reynsluleysi.

Hvernig líst þér á leikinn við Aftureldingu?
Við erum ofar á töflunni og spilum heima. Ég hræðist þá ekki. Við verðum að sína þeim að við erum á heimavelli. Við byrjuðum illa gegn þeim síðast og náðum ekki að vinna. Þeir eru með gott lið, en við ætlum að vinna þá. Við verðum því að byrja leikinn vel.

Hvað með framtíðina?
Ég vona að Selfoss fari upp og mun gera allt sem ég get til að svo megi verða. Það verður að koma í ljós hvert framhaldi verður hjá mér. Ég ætla að sinna föðurhlutverkinu þegar ég kem út.

 


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta