5. flokkur kvenna spilaði á sínu öðru deildarmóti um helgina, en mótið fór fram í Austurbergi og var í umsjá ÍR. Selfoss-1 spilaði fyrst á móti Gróttu, en Grótta hafði unnið Bikarmótið og lent í öðru sæti á fyrsta deildarmótinu.
Selfoss-Stelpurnar byrjuðu leikinn mjög illa og lak hvert markið á fætur öðru inní net okkar stelpna eftir vægast sagt lélega vörn og markvörslu. Staðan í hálfleik var 8-4 Gróttu í vil. Stelpurnar okkur spíttu í lófana í seinni hálfleik og skelltu vörninni í lás og sigruðu leikinn eftir spennandi lokamínútur 12-11.
Næsti leikur var gegn vængbrotnu liði Stjörnunnar sem varð fyrir því óláni að missa einn af sínum bestu mönnum úr leik eftir að hún meiddist gegn Val. Okkar stelpur mættu mun ákveðnari í þann leik og eftir að staðan hafði verið 2-2 tóku stelpurnar öll völd á vellinum og sigruðu með 10 marka mun 16-6.
Þriðji leikurinn var síðan gegn Val. Þær hafa oft reynst okkar stelpum mjög erfiðar og meðal annars eru Valsstelpur eina liðið sem hefur unnið þær í vetur. Eftir jafnan og spennandi leik sem einkenndist af dómarasirkus, samskeytaskotum hjá Hrafnhildi Hönnu og frábærri vörn Selfyssinga vannst leikurinn 12-10. Því var ljóst að stelpurnar væru búnar að tryggja sér annað sætið á mótinu, en þyrftu að leika hreinan úrslitaleik við Aftureldingu alveg eins og á fyrsta mótinu. Bæði lið höfðu unni alla sína leiki og því ljós að spennandi viðureign yrði framundan.
Í leiknum gegn Aftureldingu sýndu okkar stelpur allar sínar bestu hliðar og hreinlega kjöldrógu lið Aftureldingar. Þær sáu aldrei til sólar í leiknum. Með frábærri vörn og skemmtilegum sóknarleik ásamt nokkrum hraðaupphlaupum vannst leikurinn mjög örugglega 17-10. Sýnir það styrk Selfoss-liðsins að hafa sigrað næst besta liðið í flokknum með 7 mörkum.
Stelpurnar tryggðu sér því fyrsta sætið, annað deildarmótið í röð og eru í mjög vænlegri stöðu fyrir seinasta mótið.
Allar stelpurnar spiluðu frábærlega á þessu móti og var sérstaklega gaman að sjá sendingu heppnast úr hægri skyttu yfir í vinstra horn en það er sjaldséð í 5. flokki kvenna og hve vel hornamennirnir okkar nýttu færin í þessum leik. Þær hafa verið duglegar að æfa og hafa bætt sig mikið báðar sem og allar stelpurnar en þær eru einstaklega duglegar að mæta á æfingar og uppskera í samræmi við það.
Selfoss-2 spilaði einnig á mótinu og er ótrúlega gaman að fylgjast með framförum þeirra frá móti til móts. Daldís er búin að taka miklum framförum ásamt öðrum í liðinu. Stelpurnar eru byrjaðar að spila skemmtilegan handbolta í sókn sem og vörn. Einnig var markvarslan á mótinu frábær, en Andrea hefur verið að verja mjög vel með Selfoss-2 í vetur. Stelpurnar mega þó vera heldur duglegri við það að mæta á æfingar til þess að bæta sig. Ekki bara til þess að spjalla en það hefur soldið einkennt brag liðsins í vetur. Þessar stelpur hafa þó alla burði til þess að ná langt og verður einstaklega gaman að fylgjast með framförum þeirra á næstu árum.
