Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

30.3.2009 | Handboltaakademía

Selfoss-91 vann KA örugglega

KA menn sóttu okkur Selfyssinga heim á laugardaginn. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda KA með marga góða einstaklinga innan sinna raða. Sú varð þó ekki raunin því norðanmenn áttu ekki möguleika gegn heimamönnum sem leiddu í hálfleik 17-11.

Gestirnir skoruðu fyrsta mark síðari hálfleiks en okkar menn svöruðu með fimm mörkum í röð. Eftir það var eins og allur kraftur væri búinn KA megin. Sá munur hélst meira og minna út leikinn og voru lokatölur 32-21 Selfossi í vil. Selfyssingar fengu mýmörg tækifæri að auka við forskot sitt en fóru illa með mörg tækifæri.

Fimmtudaginn næsta mætir sama lið Valsmönnum og er það síðasti leikur deildarinnar. Sigur í þeim leik tryggir liðinu 3. sæti deildarinnar og mætir það líklegast KA eða ÍR í úrslitakeppninni. Deildin hefur verið afar jöfn og skammt stórra högga á milli.

Síðuritari ætlar að birta örstuttan pistil síðar um deildina í 3. flokki, bæði hjá A og B liði en síðuritari fylgist afar vel með og hefur mikinn áhuga á því starfi sem verið er að vinnan innan deildarinnar. Því telur hann sig vera vel í stakk búinn að rita nokkrar línur um stöðu mála.

Tölfræði:
Örn 7/9, 6 brotin fríköst og 3 fráköst
Steini 5/8, 4 stoðsendingar
Árni 5/10, 10 stoðsendingar og 6 brotin fríköst
Matti 4/9, 9 brotin fríköst
Siggi Már 4/5, 7 brotin fríköst
Andri Halls 3/4, 5 brotin fríköst
Trausti 2/2
Mási 1/3
Sissi 1/1
Anton og Einar komust ekki á blað þrátt fyrir innkomu aldarinnar hjá Einari.
Sverrir 14 og fékk á sig 10
Helgi varði 11 og fékk á sig 11


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta