Leikurinn byrjaði illa fyrir heimamenn sem virkuðu eitthvað illa stemmdir fyrir leiknum. Gestirnir komust í 0 - 3 og svo 3 - 6. Selfoss náði reyndar alltaf að minnka bilið niður 1 mark en misstu svo gestinar aftur í 2 - 4 mörk framúr sér. Frumkvæði gestanna entist fram að hálfleik en þá leiddu þeir 13 - 15. Í þessum fyrri hálfleik var vörnin ekki nógu hreyfanleg og markvarslan ekki nógu góð fyrsta korterið. Sóknarleikurinn var þó þokkalegur eins og vanalega en markvörður gestanna átti góðan fyrri háfleik og Selfoss fór afar illa með mörg góð færri, þ.m.t. 2 vítaköst.
Selfoss byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og breytti stöðunni í 18 - 16 á fyrstu 5 mínútunum og tók þar með frumkvæðið í leiknum og hélt því til leiksloka. Selfoss leiddi það sem eftir var leiks með 2 - 3 mörkum. Varnarleikurinn small virkilega vel saman og markvarslan batnaði til muna. Þá náðu Selfyssingar einnig að beita hraðaupphlaupunum sínum betur og uppskáru oft góð mörk fyrir vikið. Sóknarleikurinn, þ.e. uppstillt sókn hikstaði hins vegar þar sem Atli náði sér ekki á strik í leiknum sóknarlega því þrátt fyrir einar 6 stoðsendingar þá var hann með slaka skotnýtingu.
Ragnar var í leikbanni að þessu sinni og þá fékk Ramunas beint rautt um miðjan fyrri hálfleik og því mæddi mikið á Herði Mássyni (Sjóla) í þessum leik. Þetta er annar leikurinn í röð sem leikmaður Selfoss fær frekar ódýrt rautt spjald. Selfoss hafði ekki fengið rautt spjald í 22 leikjum en hafa nú fengið 2 í tveimur.
Hörður stóð vaktina hins vegar með glans og var að öðrum ólöstuðum maður leiksins. Hann skoraði 6 mörk, gaf einar 7 stoðsendingar og náði í 1 vítakaast sem var skorað úr. Það fóru því 14 mörk í gegnum hann að þessu sinni. Frábær frammistaða hjá strák sem hefur þurft að bíða þolinmóður í allan vetur eftir tækifærinu.
Í Selfossliðinu áttu Hörður Másson, Hörður Bjarnarson og Michal góðan leik auk þess sem að Atli Kristinsson spilaði mjög góða vörn í leiknum í nýrri stöðu. Birkir skilaði sínu en hann byrjaði leikinn hins vegar mjög illa og varði varla skot fyrsta korterið í leiknum. Þá átti Guðmundur Árni góða innkomu þegar gestirnir spiluðu mjög frammliggjandi vörn og náði hann að klára það verkefni mjög vel. Klókt hjá Sebastian að setja hann inná í þessari stöðu.
Hjá Aftureldingu var Hilmar frábær en hann skoraði 13 mörk og var með 100% nýtingu á vítalínunni. Reynir Ingi skoraði nokkur gullfalleg mörk í leiknum og þá átti Smári Guðfinnsson góðan fyrri hálfleik en að hann varði 3 vítaköst frá Selfyssingum í leiknum.
Markaskorarar Aftureldingar:
Hilmar Stefánsson 13
Reynir Ingi Árnason 5
Daníel Jónsson 4
Jóhann Jóhannsson 4
Bjarni Aron Þórðarson 3
Attila Valaczkai 1
Tölfræði Selfoss:
Michal 7 mörk úr 8 skotum, 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 2 fráköst, 6 fengin víti, 1 varið skot og 6 brotin fríköst
Hörður (Sjóli) 6 mörk úr 12 skotum, 7 stoðs., 1 frákast, 1 fengið víti og 1 brotið fríkast
Bjarki 5 mörk úr 8 skotum, 2 stoðs., 1 tapaður bolti og 1 bolta náð
Hörður (Bjarnar) 4 mörk úr 4 skotum, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 1 fengið víti og 1 brotið fríkast
Atli 3 mörk úr 11 skotum, 6 stoðs., 2 tapaðir boltar, 2 boltum náð, 1 fengið víti, 2 varin skot og 4 brotin fríköst
Mikalonis 2 mörk úr 2 skotum, 3 stoðs., 1 tapaður bolti, 2 varin skot og 2 brotin fríköst
Helgi 2 mörk úr 4 skotum, 4 stoðs., 1 frákast og 3 brotin fríköst
Guðmundur 2 mörk úr 3 skotum og 1 stoðs.
Halldór 1 mark úr 2 skotum, 4 stoðs. og 3 tapaðir boltar
Óskar (Kúldi) 1 frákast, 1 varið skot og 3 brotin fríköst
Eyþór 1 tapaður bolti og 1 brotið fríkast
Einar 2 brotin fríköst
Birkir varði 19 skot (40%)
Nú er 1 leikur eftir í deildarkeppninni á móti ÍBV í Eyjum næsta föstudagskvöld. Úrslitakeppnin hefst svo 17. apríl í Vallaskóla á móti annað hvort ÍR eða Aftureldingu. Biðjum við Selfyssinga að taka þetta kvöld strax frá. Framundan er baráttan um sæti í úrvalsdeild og við þurfum á öllum Selfyssingum að halda í þeirri baráttu.
Áfram Selfoss
