Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

31.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur gegn FH á heimavelli í 2. flokki

Leikurinn byrjaði strax með látum og bæði lið keyrðu látlaust. Selfoss gekk betur í hraðaupphlaupum en hröð miðja FH-inga var baneitruð og náðu Selfyssingar alls ekki að stoppa vel útfærðar miðjur FH. Heimamennn náðu þó að komst fram úr snemma leik þökk sé góðri markvörslu Birkis. Eftir 15 mín. var staðan orðin 15 - 8 fyrir Selfoss. Selfoss stóðst grimm áhlaup FH liðsins fram að hálfleik og var staðan þá 25 - 19, ótrúlegar hálfleikstölur.

Í síðari hálfleik byrjuðu FH-ingar betur og voru búnir að minnka muninn í 32 -29 eftir 10 mín. leik. Þá náðu heimamenn aftur smá kipp og juku forskotið upp í 3 - 5 mörk. Það sem eftir var leiks varð þetta þannig að FH náðu að minnka forskotið en heimamenn náðu alltaf að slíta sig frá aftur. Mest náðu FH-ingar að minnka muninn í 1 mark í seinni hálfleik á meðan þeir voru 1 leikmannni fleiri en þá náðu þeir að skora 5 mörk á móti 1 á aðeins 2 mínútum. Þá tók Birkir aftur til sinna ráða og lokaði markinu og heimamenn náðu aftur 3 - 4 marka forystu sem þeir héldu til leiksloka að þessu sinni. Selfoss hafði staðist síðasta áhlaup FH. Lokatölur því 41 - 38 eins og áður hefur komið fram.

FH er með frábært lið og úrvalsleikmenn í öllum stöðum og nánast hver einasti leikmaður liðsins hefur einhvern tímann verið valinn í landslið. Þrátt fyrir það vantaði bæði Aron Pálmarsson og Ólaf Guðmundsson í liðið í gær. Í þessum leik voru Ásbjörn, Örn Ingi og Sigurður bestir. Ásbjörn skoraði mikið með skotum utan af velli og Örn Ingi gerði vörninni lífið leitt með hraða sínum. Fyrir vikið opnaðist línan talsvert þar sem Sigurður stóð sig vel. Þá var Ólafur Gústafsson mjög hættulegur þegar hann komst í loftið. Hann hins vegar var óheppinn með nokkur skot sem fóru í tréverkið og þá náði Birkir að verja nokkur skot frá honum á ótrúlegan hátt.

Selfossliðið var mjög þétt í þessum leik en því miður náði vinstri kanturinn sér ekki á strik en langt er síðan Eyþór hefur verið með jafn slaka skotnýtingu. Fyrir vikið opnaðist vinstra hornið ekki eins mikið og vanalega. Hins vegar var hægri kanturinn sjóðandi heitur en Raggi og Gummi voru með 26 mörk á milli sín. Þá áttu miðjumennirnir góðan dag og voru með 21 stoðsendingu í leiknum. Þá var það gríðarlega mikilvægt fyrir liðið að Halli náði að setja 6 mörk og voru flest þeirra utan af velli. Þannig að ekki dugði að klippa hægri kantinn að þessu sinni. Ekki má gleyma Birki sem varði 29 skot og var hreinlega frábær í þessum leik.

Markaskorarar FH:
Ásbjörn Friðriksson  14
Örn Ingi Bjarkason  7
Sigurður Ágústsson  6
Ólafur Gústafsson  4
Halldór Guðjónsson  3
Þorkell Magnússon  3
Benedikt R. Kristinsson  1

Tölfræði Selfoss:
Gummi  14 mörk úr 20 skotum, 3 boltum náð og 1 frákast

Raggi  12 mörk úr 17 skotum, 3 stoðs., 2 tapaðir boltar, 1 bolta náð, 1 frákast, 1 varið skot og 6 brotin fríköst

Halli  6 mörk úr 6 skotum, 13 stoðs., 2 tapaðir boltar og 6 brotin fríköst

Bjarki  4 mörk úr 7 skotum, 2 stoðs., 1 bolta náð, 1 frákast og 2 brotin fríköst

Einar  3 mörk úr 4 skotum, 1 bolta náð, 2 fráköst, 3 fengin víti, 2 varin skot og 10 brotin fríköst

Helgi  1 mark úr 2 skotum, 8 stoðs., 4 tapaðir boltar, 1 frákast og 1 brotið fríkast

Sjóli  1 mark úr 1 skoti

Eyþór  0 mörk úr 6 skotum, 1 stoðs., 1 tapaður bolti og 2 brotin fríköst

Kúldi  3 brotin fríköst

Birkir varði 29 skot (43%), 1 stoðs., 2 tapaðir boltar og 1 skot í slá

Með þessum leik er liðið búið að tryggja sig inn í 4 liða úrslitin og sjálfstraust liðsins er mjög mikið eftir sigra bæði á Deildarmeisturum Akureyrar og frábæru FH liði. En sigurinn í gær gæti verið dýru verði keyptur þar sem Raggi missteig sig mjög illa þegar um 10 mín. voru leiksloka. Miðað við hversu mikið hann bólgnaði strax þá er ástæða til þess að hafa áhyggjur. Honum var hins vegar lkomið strax til sjúkraþjáfara liðsins og vonum við öll að hann verði ekki lengi frá.

Áfram Selfoss


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta