Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

31.3.2009 | Handboltaakademía

Ţrír sigrar hjá unglingaflokki kvenna

Það voru aðeins 7 leikmenn sem að fóru í leikinn gegn Gróttu og var því enginn skiptimaður í leiknum. Þetta var jafn og fjörugur leikur og reyndi mikið á stelpurnar að spila án skiptimanna. Þær stóðu sig mjög vel og voru margar sem höfðu gott af því að þurfa að klára heilan leik. Vörnin var góð í leiknum og sóknarleikurinn mjög góður oft á tíðum þegar stelpurnar náðu að galopna vörnina hjá andstæðingnum. Stelpurnar leystu það líka vel þegar tvær voru teknar úr umferð í seinni hálfleik og sýndu mikla baráttu. Leikurinn vannst á lokamínútunum og unnu þær góðan sigur 21-20.

Markahæstar í liði Selfoss voru Hildur með 11 mörk, Thelma og Jóhanna voru með 4 mörk hvor og Íris skoraði 3 mörk. Allar stelpurnar stóðu sig frábærlega í vörn og fyrir aftan þær varði Áslaug 20 bolta og Hildur eitt þegar Áslaug fékk 2 mínútur.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Nokkrum dögum síðar spiluðu stelpurnar við Fjölni/Aftureldingu sem að þær töpuðu fyrir í lélegum leik fyrr á tímabilinu. Eins og svo oft áður var það góð vörn sem að einkenndi leik liðsins, enda hefur það verið eitthvað sem að hefur verið lögð mikil áhersla á í vetur. Einnig eru stelpurnar alltaf að skora fleiri mörk úr hraðaupphlaupum sem er mjög jákvætt.

Stelpurnar byrjuðu frekar illa í leiknum og misstu marga bolta í sókninni og gerðu mistök í vörninni svo að þær voru aðeins 1 marki yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik löguðu þær það sem þurfti í vörninni og spiluðu mun betri sókn og komust úr 16-13 í 23-16 og kláruðu leikinn örugglega 25-18, frábær sigur sem skapaðist fyrst of fremst af góðri vörn og markvörslu. En einsog áður sagði skoruðu stelpurnar líka nokkur góð mörk úr hraðaupphlaupum.

Markahæstar voru Thelma og Hildur með 7 mörk hvor, Íris var með 5 mörk, Gugga 4 og Dagný með 3. Vörnin stóð sig vel og stóðu Dagný, Thelma sig sérstaklega vel í miðri vörninni eins og Íris og Ragna í bakvörðunum. Áslaug var góð einsog venjulega og varði 22 skot.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Loks spiluðu stelpurnar við HK2 og unnu þann leik líka 19-16 en staðan í hálfleik hafði verið 12-8 fyrir Selfoss. Það kemur samantekt úr þessum leik síðar.

Niðurstaðan því 3 sigrar í 3 leikjum. Frábært hjá stelpunum.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta