Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

3.4.2009 | Handboltaakademía

Tap gegn ÍBV

92 liðið tapaði fyrir heimamönnum í ÍBV síðastliðinn miðvikudag, 31-27 eftir að hafa verið undir 13-10 í hálfleik. Selfyssingar voru undir nær allan leikinn og verður þessi leikur að flokkast sem einn lélegasti leikur tímabilsins af þeirra hálfu.

Aðeins einu sinni komust okkar menn yfir í leiknum, en það var í stöðunni 7-6. Eyjamenn náðu mest fimm marka forustu nokkrum sinnum í leiknum og náðu okkar menn minnst að minnka þann mun í eitt mark 26-25 og átti möguleika á að jafna. En allt kom fyrir ekki og niðurstaðan því tap, 31-27.

Lykilmenn á borð við Daníel og Einar náðu sér engan veginn á strik og munar um minna og þá gat Ketill lítið leikið vegna meiðsla. Ingvi sást varla í leiknum, en hann hafði leikið afar vel í undangengnum leikjum. Þá hefur Anton oft leikið betur en hann lét skapið hlaupa með sig oft í annað en einbetingu fyrir handboltanum líkt og margir aðrir i liðinu. Þó verður að segjast að Anton gerði marga góða hluti inn á milli í leiknum. Andri Karls lék vel í leiknum og skoraði fimm mörk, öll í síðari hálfleik.

Tölfræði:

Aðalsteinn 10/26 og 13 brotin fríköst

Anton 5/8 og 5 brotin fríköst

Karlsson 5/7 og 7 brotin fríköst

Guðbjörn 2/2

Einar 2/5, 9 stoðsendingar og 5 brotin fríköst

Kammi 1/1 og 4 brotin fríköst

Daníel 1/1, 3 tapaðir og 7 brotin fríköst

Ingvi 1/2 og 6 brotin fríköst

Ketill 0/0 og 2 brotin fríköst

Erlingur varði 20 skot


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta