Strákarnir í 91 liði Selfoss unnu í gærkvöld Valsmenn 31-24. Heimamenn léku ekki vel í leiknum og voru undir 70% af leiknum, enda lék liðið afar illa. Mikið grimari, einbeittari og viljugri Valsmenn leiddu í hálfleik 12-13. Í fyrri hálfleik tókst Selfyssingum að misnota 12 dauðafæri.
Heimamenn léku lengst hörmulega og þurfa margir þeirra að fara í all verulega naflaskoðun ef þeir ætla sér eitthvað áfram á Íslandsmótinu. Margir leikmanna Selfoss virtust halda að hlutirnir kæmu af sjálfu sér, gott dæmi um það var að Selfoss tóku ekki nema sex fráköst í leiknum en Valsmenn sennilega vel á annan tug.
Gestirnir náðu að komast í 14-18 og stefndi allt í að Selfyssingar myndu sætta sig við tap. En þá var eins og menn vöknuðu af værum blundi og það sem eftir lifði leiks keyrðu okkar menn yfir Valsmenn og síðustu 20 mínútur leiksins fóru 17-6 fyrir Selfoss. Þá loksins fóru menn að leika vörn og fengu mörg hraðaupphlaup, sem þó sum hver skiluðu ekki marki vegna lélegs skot- eða sendingarvals. Í lið Selfoss vantaði Sigurþór (Zodiac) og munaði mikið um það.
Heimamenn náðu að rífa sig upp eins og áður sagði, en verða engu að síður taka sig saman í andlitinu. Þar fara fremstir í flokki Andri Már, Andri Halls, Örn Þrastar og síðast en ekki síst fyrirliðinn Árni Steinn. Þeir þurfa á afar góðri lýtaaðgerð að halda hvað handbolta varðar. Hins vegar átti Trausti góða innkomu, Matthías reif sig upp í seinni hálfleik, Siggi Már átti góðan leik sem og Steini. Þá varði Helgi jafnt og þétt allan leikinn. Sverrir hefur varið markið afar vel tvo leiki á undan þessum en nú tók Helgi við. Þetta er samkeppni og mikil styrkur að hafa báða þessa menn í sama liði.
Geysilega mikil heimadómsgæsla var í leiknum sem kristallast fyrst og fremst í því að Selfoss fékk tvær brottvísanir fyrir leikbrot en Valsmenn enga. Selfoss fékk fjögur vítaköst en Valsmenn sex. Þrjú mörk voru tekin af Selfyssingum en Valsmenn skoruðu a.m.k. tvö sérstök mörk þar sem annað þeirra fór ekki inn fyrir marklínuna. Ef þetta er ekki uppskrift af heimadómsgæslu þá veit síðuritari ekki hvað.
Tölfræði
Matti 7/13, 13 brotin fríköst, 2 fráköst og 2 varin
Steini 6/8
Siggi Már 5/9, 3 stoðsendingar, 4 varin, 2 fráköst og 10 brotin fríköst
Mási 5/8
Trausti 3/4
Örn 3/6 og 7 brotin fríköst
Árni Steinn 2/8, 10 brotin fríköst, 4 stoðsendingar og 2 fráköst
Andri Halls 0/2 og 5 brotin fríköst
Toni 0/1
Helgi varði 25 skot og fékk á sig 24
Sverrir kom ekki við sögu að þessu sinni.
