Í gær lék 92 liðið (B-liðið) sinn síðasta deildarleik og voru gestirnir að þessu sinni Grótta. Selfyssingar áttu möguleika að fara í svokallað umspil með sigri í leiknum og því alveg ljóst að menn ætluðu að selja sig dýrt. Það gerðu leikmenn svo sannarlega en því miður dugði það ekki til gegn A liði Gróttu. Lokatölur voru 23-24 eftir að hvort lið skoraði 12 mörk í fyrri hálfleik.
Fyrri hálfleikur var jafn mestan tímann en Gróttan þó alltaf skrefinu á undan. Frábær markvarsla Erlings í markinu var liðinu afar mikilvæg sem og góður leikur Ketils í vinstra horninu. Vörn Selfoss var frábær með Ketil, Jóhann og Ingva sem fremstu menn.
Heimamenn náðu fljótlega fjögurra marka forustu 19-15 í seinni hálfleik en fóru afar illa að ráði sínu á þessum tímapunkti því að auki var liðið tveimur leikmönnum fleiri um tíma. Gróttan nær að jafna og komust svo yfir í lok leiks með heppnismarki og okkar menn náðu ekki að nýta síðustu sókn í leiknum. Niðurstaðan því tap sem er sárgrætilegt vegna að þess að allir leikmenn lögðu sig eins mikið fram og hugsast gat. Frábær vörn, mikið um brotin fríköst, geysileg barátta og skynsemi og þolinmæði í sókn. Síðuritari er afar stoltur af liðinu. Því ekki má gleyma að sama Gróttulið vann Selfoss í fyrri leik liðanna í vetur en síðan þá hafa fjórir leikmenn horfið á braut, fjórir afar sterkir leikmenn. En í 92-liðinu eru strákar sem trúa og vilja og það skilar þeim miklu þó ekki hafi náðst sigur í gær.
Allir leikmenn Selfoss fá mikið hrós, alls brutu þeir 63 fríköst í leiknum og fyrir aftan þann dugnað stóð Erlingur sig frábærlega og varði 25 skot og þar af þrjú vítaköst. Ingvi hefur bætt sig mikið sem varnarmaður í vetur og ekki síst sem línumaður, nautsterkur og mega útileikmenn senda meira á hann. Ketill átti sinn besta leik á tímabilinu, Anton gerði góða hluti en var óheppinn með sum skota sinna og svo stóð Jóhann Gylfi sig afar vel en hann er enn í 4.flokki. Seltirningar þurftu m.a.s. að taka hann úr umferð til að slökkva í honum. Þá stóð Daníel sig afar vel í vörninni en hefði mátt vera ákveðnari í sókninni. Einar gerði marga góða hluti þrátt fyrir ekkert allt of góða skotnýtingu. Kamil og Karlsson börðust vel og skiluðu góðu varnarhlutverki og Árni Felix kom með góða strauma í leik liðsins. Erlingur varði frábærlega og vonandi heldur hann áfram og æfir 100% því mikið er spunnið í þann ágæta dreng.
Arnar þjálfari sagðist afar stoltur af liðinu og að allir leikmenn hafi lagt allt sitt í verkefnið og sorglegt væri að uppskera ekki sigur. Liðið var hársbreidd frá því að vinna sér sæti í úrslitakeppni en oft er skammt stórra högga á milli. Jafnframt bætti Arnar því við að þessir strákar hefðu bætt sig afar mikið í vetur og þyrftu ekki að óttast framtíðina ef þeir leggðu sig í þau verkefni er biðu þeirra.
Tölfræði:
Jóhann Gylfi 5/7, 3 stoðsendingar og 10 brotin fríköst
Einar 5/18, 5 stoðsendingar, 3 stolnir, 2 tapaðir og 9 brotin fríköst
Ketill 4/5, 7 brotin fríköst og 2 tapaðir
Anton 4/10, 4 stoðsendingar og 4 brotin fríköst
Ingvi 2/3 og 13 brotin fríköst
Kamil 2/3, 2 fráköst og 5 brotin fríköst
Daníel 1/4 og 11 brotin fríköst
Árni Felix 1 stolinn, 1 brotið fríkast og 1 stoðsending
Andri Karls 2 brotin fríköst
Biggi og Ísak komust ekki á blað
Erlingur varði 25 skot (3 víti) en fékk á sig 24
