Þetta lið er að mestu borið uppi af 1989 árganginum en þeir hafa spilað lengi saman. Þá hafa ýmsir aðrir leikmenn komið inn í liðið í vetur og hjálpað til. Má þar helsta nefna Ómar Vignir Helgason, Ívar Grétarsson, Sævar Þór Gíslason og Guðmund Inga Guðmundsson. Þá hafa nokkrir drengir úr 3. flokki líka lagt sitt af mörkunum.
Meistaraflokkur Selfoss hefur því unnið til tveggja verðlauna á þessu ári. Nú þarf bara að klára síðasta partinn og vinna úrslitakeppnina um laust sæti í efstu deild.
Áfram Selfoss
