Leikurinn byrjaði vel fyrir heimamenn sem komust fljótt í þriggja marka forystu 0-3 og 3-6. Síðan kom slakur kafli þar sem heimamenn náðu að stjórna hraða leiksins. Selfossliðið komst aldrei í gírinn sóknarlega enda vanir að skora á milli 30 og 40 mörk í leik. Niðrustaðan varð hins vegar 24 mörk að þessu sinni. Varnarleikur heimamannna var þéttur og fyrir aftan hana átti markvörðurinn stórleik.
Það er hins vegar mikið styrkleikamerki fyrir Selfoss liðið að nú þegar sóknin brást þeir sýndu þeir að þeir geta vel spila góða vörn líka. Varnarleikurinn hefur oft í vetur verið brotthættur en að þessu sinni var bara skellt í lás. Liðið breytti út af vananum og spilaði 6:0 vörn. Staðan í hálfleik var 11 - 12 fyrir Selfoss og fékk liðið því aðeins 7 mörk á sig í seinni hálfleik.
Helgi, Sjóli og Gummi sáu um markaskorunina að þessu sinni en þeir skoruðu 19 af 24 mörkum liðsins í leiknum. Hinum megn á vellinum var það Einar í fyrri hálfleik og svo Kúldi og Sjóli í seinni hálfleik sem áttu frábæran dag í vörn. Ekki má gleyma Birki sem varði 10 skot í fyrri háfleik og svo 12 í seinni hálfleik, alls 22 skot.
Þegar upp er staðið þá er þetta mikilvægur sigur í baráttunni um 2. sætið í deildinni. Það vantaði Ragga, Halla og Bjarka í þessum leik. Það kom ekki að sök enda góð breidd í liðinu.
Tölfræði:
Gummi 7 mörk úr 13 skotum, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 3 stolnir boltar og 1 frákast
Sjóli 6 mörk úr 14 skotum, 2 stoðs., 2 tapaðir boltar, 2 boltum náð, 2 fráköst, 3 varin skot og 7 brotin fríköst
Helgi 6 mörk úr 10 skotum, 1 stoðs., 2 tapaðir boltar, 1 varið skot og 3 brotin fríköst
Sæli 2 mörk úr 7 skotum, 1 tapaður bolti og 1 frákast
Eyþór 2 mörk úr 7 skotum, 2 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 1 fengið víti og 4 brotin fríköst
Sveinbjörn 1 mark úr 1 skoti, 1 frákast og 1 brotið fríkast
Einar 0 mörk úr 2 skotum, 3 fráköst, 3 fengin víti, 2 varin skot og 6 brotin fríköst
Atli 0 mörk úr 1 skoti og 1 brotið fríkast
Kúldi 1 stoðs., 1 fengið víti, 1 varið skot og 9 brotin fríköst
Andri 0 mörk úr 1 skoti og 1 frákast
Birkir varði 22 skot (54%), 1 stoðs., og 1 tapaður bolti
