Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

15.4.2009 | Handboltaakademía

Úrslitin ráđast í handboltanum á nćstunni

Nú fara í hönd spennandi tímar í handboltanum á Seflossi, úrslitin ráðast á Íslandsmótunumf í öllum flokkum. Meistaraflokkur á í vændum spennandi leiki við Aftureldingu og Stjörnuna eða ÍR um sæti í úrvalsdeild að ári.

2. flokkur náði 2. sæti í deildinni í vetur og leikur við FH í úrslitakeppninni og verður sá leikur á Selfossi. Það lið sem vinnur þá viðreign leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.

B-lið meistaraflokks tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á dögunum.

Utnadeildarliðið leikur til útslita um Íslandsmeistaratitil við Júmboys.

3. flokkur karla varð í 3. sæti í deildarkeppninni og leikur við FH í úrslitakeppninni. Verður sá leikur á Selfossi þriðjudaginn 21. apríl. Helgina 25.-26. apríl verða svo undanúrslit og úrslit.

4. flokkur karla leikur við KA í 8 liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn og verður sá leikur norður á Akureyri um næstu helgi.

Stelpurnar í 4. flokki sem urðu deildarmeistarar á dögunum fara í úrslitakeppni 25.-26 apríl.

5. flokkur karla eldra ár leikur í Hafnarfirði nú um helgina á síðsta fjölliðamóti vetrarins. Strákarnir eru sem stendur í 3. sæti síns árgangs.

5. flokkur kvenna leikur líka í Hafnarfirði um helgina og eiga þær mjög góða möguleika á að fá Íslandsmeistarabikarinn afhentan, þær hafa góða forustu á önnur lið.

5. flokkur karla og kvenna yngra ár (fædd 1996) fara til Húsavíkur dagana 23.-26. apríl. Þetta verður sannkölluð ævintýraferð fyrir krakkana, gist í þrjár nætur, böll, bíó, kvöldvökur o.fl. Stelpurnar eiga góða möguleika á titli en strákarnir eru í 3.-4. sæti til Íslandsmeistara.

6. flokkur drengja fer til Vestmannaeyja helgina 1.-3. maí. Þar eiga öll liðin A,B og C möguleika á titli.

6. flokkur stúlkna fer til Akureyrar 1.-3. maí. Þær eru sem stendur í 5. sæti.

7. flokkar drengja og stúlkna taka síðan þátt í móti á Seltjarnarnesi 25.-26 apríl.

Á þessari upptalningu má sjá að það verður nóg um að vera hjá handboltakrökkum næstu daga og vikur. Selfoss er í fremstu röð í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Árangurinn í vetur hefur verið sérlega góður og ekkert annað félag getur státað af viðlíka árangri.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta