Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

15.4.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Víking og endađi í 2. sćti

Í upphafi leiksins skiptust liðin á að stjórna ferðinni en svo náði Selfoss frumkvæðinu og hélt því til hálfleiks. Varnarleikurinn gekk ekki alveg sem skyldi og Víkingar fengu góð marktækifæri sem þeir nýttu vel. Þá var markvarslan eðlilega ekki til staðar heldur og varði Birkir bara 6 skot í hálfleiknum. Sóknarleikurinn gekk hins vegar vel eins og vanalega og náðu okkar strákar að setja 19 mörk þrátt fyrir að mörg góð færi hafi farið forgörðum.

Skipt var um vörn í hálfleiknum og við það stórbatnaði frammistaða liðsins í vörn og þá hrökk Birkir í gang og varði alls 15 skot í seinni hálfleik. Hins vegar kom hik í sóknarleikinn framan af seinni hálfleiknum. Hann hrökk svo aftur í gang þegar Eyþór kom sterkur inná aftur og skoraði hvert markið á fætur öðru.

Niðurstaðan sigur á útivelli á móti liðinu í 4. sæti deildarinnar. Mikilvægur leikur þar sem heimavallarrétturinn var í húfi. Það þýðir að leikurinn við FH í undanúrslitum verður á heimavelli.  Liðið virkar þétt, vel skipulagt oghugarfar leikmanna til mikillar fyrirmyndar. Umfram allt þá er gríðarleg liðsheild til staðar enda veitir ekki af fyrir verkefnið sem framundan er. 

Tölfræði:

Bjarki  9 mörk úr 14 skotum, 2 stoðs., 1 frákast og 1 fengið víti

Guðmundur  6 mörk úr 13 skotum, 1 stoðs. og 2 boltum náð

Eyþór  6 mörk úr 9 skotum, 3 stoðs., 1 frákast og 2 brotin fríköst

Hörður (Sjóli)  4 mörk úr 10 skotum, 3 stoðs., 4 boltum náð, 1 fengið víti og 2 brotin fríköst

Einar  2 mörk úr 4 skotum, 1 tapaður bolti, 3 fráköst, 2 fengin víti, 1 varið skot og 5 brotin fríköst

Ársæll  2 mörk úr 2 skotum og 1 frákast

Sveinbjörn  2 mörk úr 3 skotum og 1 fengið víti

Atli  2 mörk úr 3 skotum, 1 fengið víti og 3 brotin fríköst

Helgi  0 mörk úr 1 skoti, 6 stoðs., 2 tapaðir boltar, 1 bolta náð, 1 fengið víti og 7 brotin fríköst

Halldór  0 mörk úr 2 skotum, 3 stoðs., 1 tapaður bolti og 1 brotið fríkast

Óskar (Kúldi)  1 stoðs., 3 boltum náð, 1 varið skot og 5 brotin fríköst

Birkir varði 21 skot þar af 2 víti (46%), 1 tapaður bolti og 2 boltum náð

Ástgeir kom ekki við sögu í leiknum

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta