Öðrum leik Selfoss og Aftureldingar í úrslitakeppninni um laust sæti í efstu deild karla í handknattleik, veður lýst beint á útvarpi Suðurland á fm 96,3. Leikurinn fer fram í Mosfellsbæ, Það verða þeir Gísli Felix Bjarnason og Einar Guðmundsson sem lýsa leiknum eins og þeir gerði í fyrsta leiknum s.l. föstudag. Einnig hægt að hlusta í gegnum netið á www.963.is . Útsending er í boði Lögmanna Suðurlandi og hefst kl 16:30 í dag.
Boðið verður uppá fría rútuferð fyrir stuðningmenn Selfoss-liðsins frá Vallaskóla meðan pláss leyfir.
Lagt verður af stað kl. 14:30.
