Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

20.4.2009 | Handboltaakademía

Tímabilinu lokiđ hjá meistaraflokki

Ragnar kom aftur inn í liðið eftir meiðsli og stóð sig vel en því miður var Atli Kristinsson meiddur í staðinn. Þannig að liðið spilaði fyrri leikinn án Ragnars og seinni án Atla. Mikil blóðtaka fyrir liðið í þessum leikjum. 

Vörn Selfyssinga var góð og Birkir stóð sig frábærlega og varði 21 skot þar af 1 víti. Sóknarleikurinn gekk erfiðlega þar sem vörn Aftureldingar var frábær. Þeir náðu alveg að loka á Michal á línunni og þetta er í fyrsta skipti í búningi Selfoss í 3 ár sem hann nær ekki einu einasta skoti á markið.

Markaskorarar Selfoss í leiknum voru:
Ragnar  8
Guðmundur  4
Bjarki  3
Halldór  3
Hörður  3
Helgi  2
Atli  1

Heimasíðan vill þakka leikmönnum og starfsliði Meistaraflokks fyrir veturinn sem hefur verið skemmtilegur heilt yfir en niðurstaðan því miður sú að liðið náði ekki markmiðum sínum um að spila í efstu deild á næsta ári. Vallaskóli var nokkrum sinnum fylltur og áhorfendur fenguð mikið fyrir sinn snúð. Liðið var þumlung frá því að fara í Bikarúrslit á móti Val og í deildinni var það aðeins 1 leikur á útivelli á móti Gróttu sem skar úr um það að liðið fór ekki beint upp. Sá leikur tapaðist á dramatískan hátt eins og frægt er orðið.

Áfram Selfoss

 

 

 

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta