Ég vill byrja á því að þakka stuðningsmönnum liðsins fyrir veturinn. Þeir stóðu sig frábærlega. Selfoss er að fá að meðaltali meira fólk á leikina sína en flest lið á landinu og stuðningurinn hefur verið bæði einlægur og góður. Þá vill ég þakka öllum þeim sem vinna í kringlum liðið fyrir þeirra fórnfúsa starf við það að skapa þá frábæru umgjörð sem er í kringum liðið í dag.
Varðandi veturinn þá var aðalmarkmiðið að vinna deildina og fara beint upp í efstu deild. Það markmið náðist ekki, en við hefðum ekki getað verið nær því. Þegar upp er staðið fellur þetta allt á 15 mín. í einum leik í deildinni. Við erum 4 mörkum yfir þegar 15 mín. eru eftir en því miður þróaðist restin af þeim leik á þann veg að það var ekki möguleiki á að vinna hann. Allt féll með Gróttu og við misstum tökin á okkar leik. Allt tal fjölmiðla um að Grótta hafi unnið deildina "frekar sannfærandi" er bara til vitnis um það hversu illa þeir fylgdust með 1. deildinni í vetur. Nðurstaðan var því 2. sæti í deildinni aðeins 2 stigum á eftir Gróttu. Liðið var besta sóknarlið deildarinnar, enda skoraði það langflest mörk allra liða, var með 33 mörk skoruð að meðaltali í leik. Á móti kom að Grótta og Afturelding voru með betri varnarlið. Liðið vann 17 leiki og tapaði aðeins 4.
Markmiðið í bikarkeppninni var að fara eins langt og hægt væri. Selfoss hefur sjaldan komist úr fyrstu umferðinni undanfarin ár og þegar að það tókst þá sagði ég að við myndum fara alla leið. Það ævintýri stoppaði aðeins þumlungi frá því að enda í Laugardalshöllinni í úrslitaleik á móti Val. Bæði leikurinn á móti Stjörnunni í 8 liða úrslitum og undanúrslitaleikurinn voru stórkostleg skemmtun fyrir alla sem mættu í húsið. Troðfullur Vallaskóli og frábær stemmning. Við vorum nokkrum sinnum búnir að tryggja okkur í úrslitaleikinn en glopruðum því tækifæri á ótrúlegan hátt. Grótta fékk því snemmbúna jólagjöf frá okkur og fór í Höllina.
Næsta markmið okkar var að fara löngu leiðina í efstu deild og klára umspilið. Við vissum að Afturelding yrði mesta fyrirstaðan á þeirri leið þar sem bæði ÍR og Stjarnan henta okkur betur. Því miður þá töpum við viðureigninni í leiknum síðasta föstudag. Liðið var yfirspennt og náði aldrei að komast í gang. Baráttan og viljinn sem einkenndi liðið í seinni leiknum hefði dugað til sigurs á föstudaginn en það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á. Afturelding vann þessa viðureign verðskuldað. Varnarleikur þeirra var frábær og þeir náðu að loka á allar okkar lausnir. Það er ekki lítið afrek að stoppa besta sóknarlið deildarinnar og halda okkur 10 mörkum undir að meðaltali í báðum leikjunum. Auðvitað munaði gríðarlega um það í okkar sóknarleik og aðal skytturnar voru meiddar í þessum viðureignum. Raggi spilaði ekki fyrri leikinn og Atli meiddist í fyrri leiknum á þumalfingri skothandar og gat varla haldið á bolta í gær og spilaði því nánast ekkert. Hins vegar má Karl þjálfari Aftureldingar eiga það að hann leysti þetta verkefni frábærlega. Þeir eru að toppa á hárréttum tíma og ég tel að þeir séu líklegri til að vinna sér sæti í efstu deild en bæði ÍR eða Stjarnan.
Niðurstaðan er því blendin fyrir mig. Mér finnst ég hafa byggt upp frábært lið á Selfossi og búið til efnilegasta lið landsins með hjálp besta yngri flokka starfs á landsinu. Hins vegar hef ég ekki á rúmlega 20 ára ferli mínum í meistaraflokki upplifað það áður að tapa einungis 7 leikjum í öllum keppnum en standa samt uppi tómhentur. Liðið spilaði alls 27 leiki í vetur og vann 20 þeirra. Vinningshlutfallið er 75% en samt náðust ekki markmiðin okkar. Liðið hefur samt þroskast vel og er frábært á góðum degi. Ég hvika hvergi frá þeirri skoðun minni að liðið sé nægilega gott handboltalega til þess að spila í efstu deild. Hins vegar vantar upp á hugarfarslega þáttinn. Það sést best á því að liðið klikkaði í öllum stóru leikjunum í vetur. Má vel vera að það sé á mína ábyrgð, en ég bendi á að í byrjunarliðinu eru 4 leikmenn sem voru í 3 FLOKKI í fyrra og 90% af liðinu er enn í 2. flokki. Það er fáheyrt í ísenskum handbolta að svo margir ungir leikmenn spili jafn stóra leiki í mfl. á Íslandi og hjá okkur í vetur. Veturinn hefur því vissulega verið gríðarlegur skóli fyrir þá. Liðið hefur bætt sig á hverju einasta ári og náði sínum besta árangri í ein 10 ár í vetur, en samt mistókst okkur. Já, virkilega blendnar tilfinningar um tímabilið.
Að lokum vill ég koma á framfæri þeirri skoðun minni að eitt stórt atriði sem skilur á milli okkar og sigurs i þessum stóru leikjum okkar í vetur er það að við erum alls ekki nógu harðir af okkur í þá leiki. Við höfum alls ekki höndlað þá hörku nógu vel sem hefur verið leyfð í þessum leikjum enda við með talsvert yngri og óreyndari leikmenn en þau lið. Þetta er staðreynd þrátt fyrir ótrúlegan áróður sumra félaga undanfarin 2 ár um það að við séum grófari en önnur lið.
Selfoss er efnilegasti klúbbur landsins og á líka eftir að verða sá besti innan fárra ára.
Ég er stoltur af því.
Virðingafyllst,
Sebastian
