Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

23.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur Selfoss kominn í undanúrslit

Selfoss vann FH á þriðjudaginn í hörkuleik á Selfossi 32-30 eftir að hafa leitt í hálfleik 17-13.

Selfyssingar leiddu yfirleitt með 3-6 mörkum en fóru illa með mörg dauðafæri sem annars hefðu gert sigurinn mun öruggari. Í lokin minnkuðu Hafnfirðingar muninn aðeins með því að spila framarlega og á þeim kafla voru okkar menn 1-2 leikmönnum færri. 

Heimamenn börðust afar vel og léku sterka vörn og gerðu marga góða hluti í sókn. Um næstu helgi fara úrslitin fram í Víkinni og mæta Selfyssingar þar Fram. Arnar þjálfari var svo góður að senda á síðuritara tölfræði leiksins og þakkar heimasíðan það. Alls var liðið með 59 fríköst brotin í leiknum. Barátta leikmanna, vilji, dugnaður, elja og grimmd var til mikillar fyrirmyndar. Alls var Selfossi vikið af leikvelli níu sinnum í leiknum en FH-ingum aðeins einu sinni. Æði oft voru því heimamenn einum til tveimur færri.  Það kom þá ekki að sök af fyrrgreindum ástæðum. Síðuritari treystir sér ekki til að taka neinn einn leikmann út.

Tölfræði:

Örn 8/10, 5 stoðsendingar, 3 tapaðir og 8 brotin fríköst

Sigurður Már 6/11 og 7 brotin fríköst

Andri Halls 5/9

Árni 4/7, 8 stoðsendingar og 12 brotin fríköst

Matthías 3/7, 2 fengin víti, 2 stoðsendingar og 10 brotin fríköst

Aðalsteinn 3/4

Sigurþór 2/2, 14 brotin fríköst og 4 álagningar

Andri Már 1/4 og 5 brotin fríköst

Einar, Trausti og Toni komust ekki á blað.

Sverrir varði 8/20 og Helgi 12/30, báðir með 40% markvörslu.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta