4. flokkur kvenna eru komnar í undanúrslit eftir góðan sigur á Stjörnunni í 8-liða úrslitum. Leikurinn byrjaði mjög vel fyrir Selfoss-stelpur og náðu þær fljótt ágætis forystu. Þær slökuðu þó full mikið á og hleyptu Stjörnunni full nálægt sér og munaði einungis 2 mörkum á liðunum í hálfleik eða 12-10. Í seinni hálfleik stungu Selfoss stelpur af og skoruðu sex mörk áður en Stjarnan náði að komast á blað. Leikurinn gekk síðan auðveldlega fyrir sig og var sigurinn aldrei í hættu. Leikurinn endaði 28-18 og Selfoss því komnar í undanúrslit og mæta þar FH. Selfoss og FH hafa mæst 2 sinnum í vetur og hefur Selfoss unnið í bæði skiptin 16-14 og 17-12 en það er ljóst að róðurinn verður erfiður og stelpurnar þurfa að mæta tilbúnar til leiks ef þeim langar að komast í úrslit. Gegn Stjörnunni var það Díana Sigmarsdóttir sem lék best, ásamt því að Hrafnhildur Hanna spilaði mjög góðan seinni hálfleik. Esther Hallsdóttir spilaði meidd en skilaði þrátt fyrir það sínu hlutverki og gott betur en það. Guðrún Bína kom með frábæra innkomu í seinni hálfleikin ásamt Stellu sem spilaði sinn besta leik í vetur og stóð sig frábærlega þá sérstaklega varnarlega. Einnig nýtti Sigfríður sitt tækifæri vel. Hjá Stjörnunni voru Unnur Hjálmarsd. og Kristín Bu bestar.
Tölfræði:
Hrafnhildur Hanna 7/10, 2 stoðsendingar, 15 brotin fríköst, 6 unnir boltar, 1 hávörn og 1 fiskað víti
Kristrún 5/8, 1 stoðsending, 6 brotin fríköst og 1 hávörn
Díana 4/8, 3 stoðsendingar og 1 fríkast
Esther 4/4, 1 stoðsending, 17 brotin fríköst og 1 unnin bolti.
Thelma 18 brotin fríköst
Guðrún 2/5
Gerður 2/2
Sigfríður 1/1
Ólöf 1/2
Stella 1/1, 6 brotin fríköst og 1 unnin bolti.
Alexandra 1/1
