Selfoss hafði frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn. Í upphafi seinni hálfleiks náði FH frumkvæðinu og hélt því svo til leiksloka. Selfoss leiddi fyrri hálfleik með 1- 3 mörkum en FH leiddi allan seinni hálfleikinn með 2 -3 mörkum. Báðum liðum gekk afar vel í sókn og voru varnir liðanna reyndar ekkert ýkja góðar allan leikinn. Hins vegar sýndu bæði lið fjölbreyttann, vel útfærðann og stórskemmtilegan sóknarleik.
Mestu munaði um það fyrir Selfoss liðið að Guðmundur, Birkir og Ragnar náðu sér aldrei á strik í þessum leik. Síðast þegar þessi lið mættust þá skoruðu Ragnar og Guðmundur 26 mörk og Birkir varði um 30 skot. Að þessu sinni voru þeir með sitt hvort markið og Birkir náði aðeins 13 vörðum boltum á í leiknum. Líklegast hafa viðureignirnar við Aftureldingu nokkrum dögum áður setið í þeim.
Það er algjör synd að þessi lið skyldu ekki mætast í úrslitum því að þau spila klárlega skemmtilegasta handboltann á landinu þar sem hraði og léttleikinn er í fyrirrúmi. Hann í það minnsta mjög áhorfendvænn.
Því miður þá hafði FH betur að þessu sinni og mæta Akureyri í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Selfoss situr því eftir með sárt ennið en liðið tapaði bæði í undanúrslitum í Bikar og í Íslandsmótinu og endaði þar að auki í 2 sæti deildarkeppninnar á eftir Akureyri. Það munaði því ekki miklu að liðið næði að keppa um alla titlana sem í boði voru á þessu tímabili. En svona getur sportið verið.
Markaskor o.fl.
Eyþór 8 úr 12, 5 stoðs., 1 fengið víti og 7 brotin fríköst
Bjarki 7 úr 9, 1 frákast og 1 brotið fríkast
Einar 6 úr 7, 1 fengið víti og 3 brotin fríköst
Sjóli 5 úr 8, 1 varið skot og 4 brotin fríköst
Helgi 4 úr 6, 4 stoðs., 2 brotin fríköst
Atli 3 úr 3, 1 frákast og 6 brotin fríköst
Halldór 2 úr 7, 10 stoðs., 1 brotið fríkast
Ragnar 1 úr 5, 4 stoðs., 2 fengin víti, 2 varin skot og 10 brotin fríköst
Guðmundur 1 úr 4 og 1 stoðs.
Bikrir varði 13 skot (29%)
Ástgeir varði 5 skot (36%)
