Í gær lék 3. flokkur Selfoss í undanúrslitum gegn Fram í Víkinni og tapaði þar óverðskuldað að mati síðuritara. Strákarnir stóðu sig frábærlega og börðust allan tímann og gáfu allt sitt í leikinn en því miður dugði það ekki. Liokatölur 33-30 Fram í vil eftir að staðan í hálfleik hafi verið 16-13.
Fyrri hálfleikur snérist að mestu leyti um að halda í við Fram þar sem okkar strákar voru einum færri í 10 mínútur af 30. Sumar brottvísanna áttu við engin rök að styðjast frá arfaslökum dómurum leiksins. Fram leiddi í hálfleik með þremur mörkum og ljóst að leikurinn yrði erfiður einum færri meira eða minna.
Okkar menn náðu að jafna og komast yfir 28-27 í síðari hálfleik. Því miður komust þeir ekki lengra þar sem flautukonsertin hélt áfram og hallaði þar verulega á Selfyssinga. Á þessum kafla féll ekkert með Selfossi, stangarskot, ranglega dæmd af þeim mörk, Fram fær vítakast sem á að vera ruðningur, Fram fer út af með boltann en ekkert dæmt, fráköst falla fyrir Fram, okkar menn klikka á dauðafærum og auðvitað fær Selfoss ekki vítaköst, ekki einu sinni þegar Fram hafði þegar unnið leikinn.
Niðurstaðan því 33-30 í góðum leik og er varla hægt að krefjast meira af Selfyssingum en það sem þeir gáfu í leikinn. Allir leikmenn skiluðu frábæru framtaki og er liðsheildin afar sterk. Í leiknum vantaði Árna Stein en hann var í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald hjá sama dómara og dæmdi í gær. Sá dómari hefur gefið Selfyssingum alls fimm rauð spjöld í vetur af þeim sjö sem 3.fl, 2.fl og mfl. hafa fengið. Sami dómari hefur dæmt tvo síðustu leiki 3.flokks og hefur Selfoss fengið 18 brottvísanir í þeim og andstæðingurinn þrjár. Það heyrir einnig til undantekninga ef Selfoss fær vítakast.
Síðuritari spurði Arnar þjálfara út í leikinn og dómgæsluna. Hann óskaði Einari Jónssyni, sem Arnar kalla toppmann, til hamingju með að vera kominn í úrslit. Arnar sagði um dómgæsluna að hún hafi verið einstefna gegn Selfossi og honum fyndist sem Selfoss ætti ekki að vinna er ónefndur maður dæmir leiki hjá félaginu. Öll tækifæri eru notuð til að henda okkar mönnum út af á meðan andstæðingarnir fá að gera nánast hvað sem er án refsingar. Skrefadómar eru margir hverjir rugl á okkur á meðan andstæðingurinn fær að hlaupa með boltann. Það eru mörg atriði í leiknum sem fá mann til að spyrja hvort við eigum virkilega ekki að vinna. Annar dómari leiksins sagði víst ástæðu fyrir mörgum brottvísunum Selfyssinga vera að þeir væru bara svona grófir. Arnar sagði um þetta að auðvitað væri erfitt að fá hlutlausa dómgæslu er menn eru búnir að ákveða hlutina fyrirfram. Að lokum sagði Arnar að dómarar ættu að dæma það sem væri að gerast en ekki það sem þeim finnst.
Næst spurði síðuritari hvort þetta væri ekki klisja að koma með svona ummæli eftir tapleik en Arnar svaraði því til að honum væri sama hvað öðrum fyndist og væri kominn með nóg af ruglinu. Það er auðveldara fyrir aðra og ekki síst menn innan hreyfingarinnar að afgreiða menn eins og hann sem ruglaða og ofsóknarbrjálaða í stað þess að spá í málefnin. Arnar er aftur á móti stoltur af sínum mönnum sem hann sagði hafa lagt sig alla í verkefnið. Hann sagði að leikmenn væri harðir á því að ná í bronsið og að andinn í hópnum hefði verið góður eftir leik er menn voru komnir yfir mesta svekkelsið.
Selfoss leikur í dag í Víkinni við Þór um 3.sætið. Þór varð deildarmeistari fyrir stuttu og eru Selfyssingar staðráðnir að ná í bronsið svo þeir fái eitthvað út úr vetrinum. Leikurinn hefst kl 15.00.
Tölfræði:
Sigurður Már 8/16, 6 brotin fríköst, 3 stoðsendingar og 5 tapaðir (þar af 3 fyrir ranga skrefadóma)
Andri Már 7/8, 4 brotin fríköst
Matthías 6/9, 2 stoðsendingar 3 stolnir og 22 brotin fríköst
Aðalsteinn 3/5 og 2 stoðsendingar
Örn 3/8, 3 stoðsendingar, 3 stolnir og 4 brotin fríköst
Andri Halls 2/5 og 6 brotin fríköst
Anton 2/3 2 stoðsendingar og 2 fráköst
Sigurþór 0/2 og 11 brotin fríköst
Einar, Trausti og Karlsson komust ekki á blað
Helgi 4/14
Sverrir 16/39
Selfoss 18 mínútur út af
Fram 4 mínútyr út af
Selfoss 1 vítakast
Fram 7 vítaköst
