Stelpurnar í 4. flokki kvenna yngra ár urðu í gær Íslandsmeistarar eftir sigur á Fylki í úrslitaleik 18-14 í Vodafone Höllinni. Staðan í hálfleik var 10-6 fyrir Selfoss. Áður höfðu stelpurnar unnið Stjörnuna 28-18 í 8-liða úrslitum og FH 16-14 í undanúrslitum. Þessar stelpur urðu einnig á dögunum deildarmeistarar. Árangur þeirra er mjög athyglisverður í ljósi þessa, en flestar af þessum stelpum eru enn í 5.flokki. Þær urðu einmitt líka Íslandsmeistarar í sínum flokki á dögunum.
