Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

30.4.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur endađi í 4. sćti

Okkar menn í 3. flokki þurftu að játa sig sigraða í leik um 3. sætið á Íslandsmótinu gegn Þór um síðustu helgi. Lokatölur 26-24 eftir að Þór leiddi 13-11 í leikhléi. Strákarnir okkar börðust vel og áttu góðan möguleika á að sigra í leiknum. Þeir komust yfir undir lok leiks en því miður dugði það ekki. Dómgæslan í leiknum var góð og eitthvað annað en einstefnan sem boðið var upp gegn Fram í undanúrslitaleiknum deginum áður.

Þórsarar leiddu yfirleitt í leiknum, en alltaf komu Selfyssingar til baka og náðu að jafna eða komast yfir yfir. Því miður snérust lokamínúturnar um stöngin inn eða stöngin út. Okkar menn fóru illa með mörg góð tækifæri og því fór sem fór.

Arnar þjálfari sagðist stoltur af sínum mönnum, en þeir hefðu verið of æstir í leiknum og þar með of ákafir í að kvitta fyrir tapið gegn Fram deginum áður. Þannig misstu þeir marga bolta og fóru illa með dauðafæri og hraðaupphlaup. Arnar sagði síðuritara að hann kæmi fljótlega með pistil um veturinn og einnig nokkrar línur um Þór Davíðsson.

Tölfræði:
Matti 7/19, 9 brotin fríköst og 3 stoðsendingar
Örn 6/8, 2 stolnir og fríköst
Siggi 5/10, 5 brotin fríköst og 4 tapaðir
Árni 4/8, stoðsendingar, 3 tapaðir og 5 brotin fríköst
Andri Halls 2/5, 2 stoðsendingar, 2 stolnir og 8 brotin fríköst
Sissi 1/1, 1 stolinn, 2 fráköst og 8 brotin fríköst
Trausti ekkert mark og ekkert skot, 5 brotin fríköst og 1 frákast
Toni 0/1
Steini 0/1
Einar og Andri M komust ekki á blað
Sverrir varði 16/1 skot, en fékk á sig 22
Helgi varði 2 skot, en fékk á sig 6


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta