Það er ljóst að mikil ásókn er í suma leikmenn Selfossliðsins og félagið mun reyna að sjá til þess að sem flestir þeirra verði áfram hér á meðan þeir spila á Íslandi. Allir leikmenn liðsins eru með samning til 2010 nema 2 og nú er ljóst að Michal Dostalík kemur ekki aftur þar sem hann og konan hans eru að eignast sitt fyrsta barn og munu því verða um kyrrt heima fyrir vegna þess. Félagið mun líklega framlengja samninga við fleiri leikmenn á næstunni.
Þjálfari liðsins Sebastian Alexandersson hafði þetta að segja um þessar fréttir:
"Ég er mjög ánægður með þetta og er mjög hrifinn af vinnubrögðum stjórnarinnar í leikmannamálum. Ragnar er einn af þeim ungu leikmönnum sem við erum að byggja liðið í kringum og því skiptir það miklu máli að leikmenn eins og hann séu samningsbundnir félaginu. Við ætlum ekki að vera uppeldisstöð fyrir félög annars staðar, sem hafa ekki þolinmæði, getu né metnað til þess að skapa sína eigin afreksmenn. Næsta skref er að koma okkur upp tengslum við einstaklinga og félög erlendis til þess að okkar leikmenn geti farið beint í atvinnumennsku frá Selfossi. Sú vinna er byrjuð og gengur vel. Þegar við verðum komnir með þessi sambönd þá munu okkar leikmenn ekki þurfa að spila fyrir "ákveðin" félög til þess að komast í atvinnumennsku. Þar með munu þau hafa a.m.k. einni freistingunni minna upp á að bjóða."
