Selfoss ’90 liðið sigraði gesti sína í HK í miklum markaleik í fyrsta leik Íslandsmótsins. Lokatölur urðu 51-36 þar sem um helmingur marka Selfyssinga kom úr hraðri miðju, hraðaupphlaupum eða seinni bylgju. Okkar menn léku alls ekki vel og var vörnin fjarri því nógu góð. Hins vegar keyrðu þeir hraðan mikið upp og áttu Kópavogsbúar engin svör við því.
Okkar drengir fóru illa af stað í leiknum og voru undir þar til fyrri hálfleikur var hálfnaður. Eftir að forystu var náð létu þeir hana ekki af hendi. Í lékhléi stóðu leikar 25-19. Sá munur hélst nánast allan fyrri hálfleik eða um það bil 6-8 mörk. Er tíu mínútur voru til leiksloka bættu okkar menn svo í og unnu 15 marka sigur. Það er alveg ljóst að fá lið ráða við Selfoss ´90 liðið er það keyrir upp hraðan, liðið verður þó að fara að spila betri vörn því á hraðanum einum saman getur það ekki alltaf treyst á sigur.
Ástgeir varði 27 skot í markinu og stóð sig ágætlega. Gummi Ólafs skoraði 15 mörk, Bjarki 10, Halli 9 og Ragnar 3. Ragnar átti 10 stoðsendingar.
