Um síðustu helgi fór 3. flokkur karla norður og atti þar kappi við KA og Þór. 92-liðið lék gegn KA á laugardegi og Þór á sunnudegi, en 93-liðið lék á laugardegi við KA. Þeir drengir léku aðeins einn leik þar sem Þór hefur eitt lið.
Síðuritari biður lesendur afsökunar á seinagangi þessarar fréttar, en illa hefur gengið að ná í Arnar þjálfara og gerði síðuritari þau mistök að ræða ekki við hinn þjálfarann í staðinn, Sebastían.
92-strákarnir töpuðu stórt gegn KA 31-19. Áttu þeir aldrei möguleika gegn firnasterku liði heimamanna. Þó brá fyrir síðasta korter leiksins mörgum góðum hlutum. Anton lék vel í leiknum sem og varði Hermann vel í markinu. Ingvi, Ketill og Árni Felix gerðu einnig fína hluti inn á milli.
Sama lið tapaði svo fyrir Þór á sunnudeginum 31-26 eftir að hafa afhent Þórsurum átta marka forystu eftir 15 mínútna leik. Það reyndist banabiti þeirra. Þór skoraði í leiknum 16 mörk fyrstu 15 mínútur leiksins, en seinustu 45 mínúturnar aðeins 15 mörk. Það segir allt sem segja þarf. Selfoss náði að minnka muninn í þrjú mörk og áttu góða möguleika í leiknum, en allt kom fyrir ekki. Anton og Einar léku vel sem og Ingvi. Hermann varði mjög vel, Magnús átti góða inkomu og einnig Vestmanneyingurinn Þorgeir. Jóhann Gylfi vaknaði til lífsins seinasta fjórðung leiksins og vonandi að hann nái að byggja á því.
93-strákarnir unnu sterkt lið KA 21-18 og bar þar hæst frábær markvarsla Boga, en hann tók 25 skot í leiknum. Janus lék vel og dældi stoðsendingum út um víðan völl. Jóhannes átti góðan leik, Gísli lék afar vel og Árni Geir skoraði falleg mörk. Þá var Gabríel drjúgur á línunni og Jóhann Jóns gerði góða hluti.
Í gær var svo heimaleik er átti að fara fram hjá 92-liðinu frestað vegna veðurs. Ekki var enn búið að finna tímasetningu fyrir þann leik er síðuritari heyrði í Arnari.
