Helgina 16.-18. okt. verður Landsbankamótið í handbolta hjá 6. flokki drengja haldið á Selfossi. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er hluti af Íslandsmeistaramótinu í 6. flokki drengja eldra ár. Á Selfoss munu streyma 11 ára strákar. Alls eru 43 lið skráð til leiks og búast má við um 450 keppendum og öðru eins af foreldrum og liðstjórum. Leikið verður í íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsi FSu Iðu.
Byrjað verður á föstudeginum kl. 16:00 og mun mótið standa fram á sunnudag. Um 80 starfsmenn koma að mótinu sem krefst mikillar skipulagningar. En þökk sé öflugu foreldrastarfi hjá deildinni og fjölmörgum sjálfboðaliðum sem tilbúnir eru að leggja hönd á plóg.
Þetta er í sjöunda skiptið sem þetta mót er haldið á Selfossi. Það er leikmenn meistaraflokks karla og Handboltaakademíu FSu sem sjá um dómgæslu. Selfoss er núverandi Íslandsmeistari í þessum aldursflokki og sendir tvö lið til leiks. Bæði eru þau í efstu deild.
Landsbankinn á Selfossi er sem fyrr aðalstyrktaraðili yngri flokka starfs handknattleiksdeildar og mótið ber nú nafn bankans fimmta árið í röð. Yngri flokka ráð vill þakka Landsbankanum á Selfossi frábæran stuðning undanfarin ár.
