Bæði lið 4. flokks Selfoss léku á laugardag gegn FH í Kaplakrika en þetta voru fyrstu leikir Íslandsmótsins í 4. flokki. Báðir leikirnir töpuðust þrátt fyrir góða möguleika hjá liðunum að vinna sína leiki. Í A-liðum vann FH 34-30 eftir að Selfoss hafi leitt meirihluta leiksins. Í B-liðum var jafnræði lengst af og vann FH þar 24-21.
Í A-liðum átti Selfoss góðan leik að mest öllu leyti, en einungis rétt rúmlega 5 af 50 leikmínútum voru slæmar og átti það eftir að reynast dýrkeypt. Selfoss náði strax góðri forystu og var yfir allan fyrri hálfleikinn, munurinn var yfirleitt á bilinu 2-3 mörk. Í hálfleik leiddi Selfoss 14-17.Í byrjun seinni hálfleiks fékk Selfoss góð tækifæri á að hrista FH-inga frá sér og klára leikinn en gerðu það ekki. T.d. voru þeir manni fleiri en náðu ekki að vinna þann kafla. Þetta kom svo sannarlega í bakið á þeim. Í stöðunni 18-21 fyrir Selfoss kemur gríðar slæmur kafli og næstu 6 mörk voru FH-inga. Staðan því allt í einu 24-21 fyrir heimamenn. Á þessum tíma var sóknarleikur Selfyssinga einhæfur og voru menn alltof lengi að bregðast við og ná tökum aftur á leiknum, en það hefði átt að gerast mun fyrr eða eftir mesta lagi 0-3 kafla. FH hélt forystunni út leikinn, þrátt fyrir að Selfoss hafi verið búnir að minnka muninn í eitt mark þegar skammt var til leiksloka en nær komust þeir ekki. Lokatölur urðu 34-30 sigur FH.
Leikur Selfoss var mjög góður lengi vel, liðið að skora mikið af mörkum og lengst af að spila vel útfærðan sóknarleik. Örfáar mínútur gerðu þeim hins vegar erfitt fyrir í dag og gerði annars góðan leik að litlu. Þó var sóknarleikurinn einhæfur á köflum í síðari hálfleik og liðið að kasta boltanum of oft frá sér í leiknum. Varnarlega var fyrri hálfleikurinn góður en að fá 20 mörk á sig í síðari hálfleik langt frá því að vera gott. Í liði Selfoss báru þeir Gísli Þór og Janus af jafnt í sókn sem og í vörn. Jóhann Erlings átti mjög góðan leik sóknarlega framan af og hefði mátt reyna meira í síðari hálfleik. Gísli Örn fékk erfitt hlutverk að leysa af línumannsstöðuna og gerði það vel. Þá nýtti Hjörtur færi sín vel í horninu.
Í B-liðum náði Selfoss strax 5-1 forystu með hörku varnarleik og kraftmiklum sóknarleik. Eftir rétt tæplega korters leik höfðu þeir svo aðeins fengið á sig 3 mörk. Þá slaknaði á Selfyssingum sem héldu að hlutirnir færu að koma að sjálfu sér. Að auki fóru þeir að pirra sig mikið á dómurum, sem voru fínir í leiknum, og allt í einu var staðan orðinn 9-9 og hálfleikur kominn.Selfyssingar náðu aldrei upp sama krafti og í byrjun leiks í síðari hálfleik. Sá hálfleikur var jafn lengst af en þegar nokkrar mínútur voru eftir þá seig FH fram úr og vann 24-21. FH-ingar fengu að spila sókn sína óáreittir og Selfoss að brjóta fá fríköst.
Selfyssingar geta sjálfum sér um kennt því þeir hættu að vinna þegar þeir höfðu náð góðri forystu. Í stað þess að halda áfram slökuðu þeir og þá er aldrei von á góðu. Þeir gleymdu leikgleðinni alveg í dag og gengur það ekki. Í sókninni kastaði liðið boltaum hátt í 20 sinnum frá sér í leiknum og segir það kannski alla söguna.Jón markmaður varði vel í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik, og sá til þess að FH-ingar brenndu af 3 vítum í leiknum. Þórður var öflugur framan af en of mistækur eftir því sem á leið. Ísak, Hjörtur og Egidijus gerðu fína hluti við og við en verða þó að komast á meiri kraft.
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
