Strákarnir í 5.flokki drengja yngra ár unnu öruggan sigur í fyrstu umferð Íslandsmótsins í handknattleik en mótið fór fram í Digranesi í Kópavogi. Þessir strákar urðu íslandsmeistarar í fyrra og byrja þetta keppnistímabil vel. Fyrirkomulag Íslandsmótsins er þannig að öll lið landsins etja kappi í fimm mótum yfir veturinn. Hvert mót telur til stig til Íslandsmeistaratitils.
Selfoss-strákarnir unnu alla sína leiki mjög örugglega. Þeir unnu síðan gott lið KR í æsispennandi úrslitaleik.
Efri röð frá vinstri: Ómar, Aron, Elvar, Hergeir, Andri Páll og Einar þjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Richard, Teitur og Oliver.
