Leikurinn byrjaði frekar rólega en í stöðunni 4 - 4 þá tók Selfoss liðið við sér og breytti stöðunni í 11 - 5 sér í hag. Síðari hálfleikur byrjaði eins og sá seinni hafði endaði og smátt og smátt náði Selfoss alltaf betri tökum á leiknum.
Varnarleikur og markvarsla var góð og sýndi liðið mikla þolinmæði sem oft hefur skort í gegnum tíðina. Hraðaupphlaupin voru betri og betri þegar leið á leikinn. Sóknarleikurinn var hins vegar frekar óagaður og flestar sóknirnar mjög stuttar enda leikmenn frekar óþolinmóðir loksins þegar þeir komust í sókn.
Ragnar og Atli Kristins voru atkvæðamestir í sókninni, Ragnar með 9 mörk og Atli með 8. Í vörninni var Atli Hjörvar góður ásamt flestum öðrum, enda náði vörnin vel saman í leiknum. Á bak við hana vörðu Ástgeir og Helgi vel eða 24 skot sem er vel yfir 50% markvörslu.
Næsti leikur liðsins verður á móti Aftureldingu 2 í Eimskipsbikarnum um næstu helgi. Svo koma Víkingar í heimsókn þann 23. október. Sá leikur er í Vallaskóla og hefst kl. 19:30.
