Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

14.10.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur karla byrjar á tveimur sigrum

Fjölnir - Selfoss 2:     23 - 26 (9 - 12)
Lið Fjölnis hefur bætt sig talsvert frá því í fyrra enda búnir að fá góðan liðstyrk með tveimur nýjum leikmönnum. Annar þeirra er Steinar Hafsteinsson, Selfyssingur, og hinn er sonur Gunnars Gunnarssonar þjálfara Fjölnis. Okkar strákar lentu í basli með að slíta sig frá Fjölnismönnum að þessu sinni. Vissulega hefðu leikmenn Selfoss sumir hverjir getað spilað betur að þessu sinni, en það kom ekki að sök. Vörn og markvarsla var góð og þá átti Aðalsteinn mjög góðan leik í sókn.

Selfoss 1 - Víkingur:     42 - 21 (22 - 10)
Fyrirfram var búist við hörku leik enda Víkingar með gott lið í 2. flokki. Liðið endaði í fyrra í 4. sæti aðeins örfáum stigum á eftir Selfossi sem endaði í 2. sæti. Víkingar hafa einungis misst einn leikmann upp úr flokknum og þótt hann sé öflugur þá mátti búast við þeim sterkum. Í Selfoss liðið vantaði Sjóla sem er meiddur og þá hefur liðið misst aðra 6 leikmenn sem spiluðu mikið í fyrra, ýmist í önnur félög eða upp um flokk. Ekkert varð hins vegar af þeim hörkuleik sem allir bjuggust við. Víkingar komumst í 0 - 3, en eftir að okkar menn náðu að jafna og komast yfir þá jókst bilið jafnt og þétt til leiksloka. Víkingar náðu sér aldrei á strik á meðan heimamenn náðu góðum leik. Niðurstaðan varð því ótrúlegur 21 marka sigur.

Næstu leikir í 2. flokki eru annars vegar á föstudag þegar Selfoss 1 mætir Val/Þrótti á útivelli í Vodafonehöllinni kl. 19:10 og hins vegar á sunnudagskvöld kl. 18:45 þegar Selfoss 2 mætir HKR (Keflavík) á heimavelli.

 

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta