Haustannarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Um er að ræða 1. stig almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið tekur 8 vikur og jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu.
Námið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa á þjálfun í einhverri íþróttagrein. Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar. Lokaverkefni verður ekki skilað fyrr en á nýju ári.
Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fimmtudaginn 29. október. Við skráningu þarf að gefa upp fullt nafn, kennitölu, heimilisfang og netfang. Þátttökugjald er kr. 24.000.- og eru öll námskeiðsgögn innifalin. Ekki er um neinar staðbundnar lotur að ræða, námið er allt í fjarnámi.
