Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

19.10.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann og tapaði í 2. umferð

Valur/Þróttur - Selfoss: 28 - 24 (14 - 14)
Valsmenn byrjuðu af krafti á meðan Selfoss liðið virkaði frekar værukært. Það var eins og að stórsigurinn á Víkingi hafi eitthvað ruglað menn í ríminu með það hvað þyrfti til innbyrða sigur. Heimamenn náðu strax frumkvæðinu og elti Selfossliðið þá allan fyrri hálfleikinn. Staðan var jöfn í hálfleik og hélst það reyndar alveg til á 56. mín. en þá var staðan 23 - 23. Heimamenn kláruðu svo leikinn og unnu sanngjarnan 4 marka sigur 28 - 24. Varnarleikurinn og markvarslan var ekkert sérstök þrátt fyrir "bara" 14 mörk í hvorum hálfleik. Þá náði Selfoss liðið aldrei upp hraða í leik sínum og sóknarleikurinn var hreinlega afspyrnu slakur og kraftlaus. Markvörður Vals/Þróttar, Friðrik Sigmarsson, átti stórleik og varði um eða yfir 30 skot. Í lið Selfoss vantaði Ragga, Sjóla og Einar, en það er enginn afsökun.

Selfoss2 - HKR: 51 - 6 (25 - 1)
Erfitt er að fjalla um þennan leik að öðru leiti en því að getumunurinn var gríðarlegur. Selfossliðið skoraði mikið úr hraðaupphlaupum og allir fengu að spila mikið. Línumennirnir fengu loksins að upplifa drauminn um að spila sem skyttur og miðjumenn hluta úr leiknum. Engu að síður fagnar heimasíðan því og hvetur HKR menn til dáða í þessari uppbyggingu sinni. Það er mikið þolinmæðisverk að búa til handboltalið frá grunni og þurfa þeir sinn tíma til að aðlagast íþróttinni. Í þeirra hópi voru strákar sem geta vel orðið góðir handboltamenn með tímanum.

Næstu leikir í 2. flokki eru um næstu helgi þegar B liðið mætir Stjörnunni á útivelli kl. 14:30, en Stjarnan er með eitt besta liðið í 2. deild ásamt Frömurum. A liðið fær að spila gegn hinu gríðarsterka Haukaliði á heimavelli sínum í Vallaskóla. Haukar eru ásamt FH með besta mannskapinn í 2. flokki, enda með núverandi eða fyrrverandi landsliðsmenn í hverri stöðu. Það verða því stórleikir hjá báðum liðum.

 


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta