Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

20.10.2009 | Handbolti

Selfoss í 16-liđa úrslit í Eimskips bikarnum

Í gærkvöldi komumst Selfyssingar í 16 liða úrslit í Eimakips bikarnum með sigri á Aftureldingu 2. Það lið var skipað fyrrverandi leikmönnum Aftureldingar og sumir þeirra voru auk þess fyrrverandi landsliðs- og atvinnumenn. Okkar menn áttu ekki í teljandi vandræðum með andstæðingana að þessu sinni enda talsverður munur á úthaldi og líkamsstyrk liðanna. Staðan í hálfleik var 22 - 11 fyrir Selfoss og lokatölur urðu 38 - 19.

Í lið Selfoss vantaði að þessu sinni nokkra leikmenn vegna meiðsla eða veikinda, en það kom ekki að sök. Allir leikmenn fengu að spreyta sig í leiknum og tveir þeirra spiluðu sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Markahæstu leikmenn Selfoss voru Árni Steinn með 8 mörk, Atli Kristins með 6 og Atli Hjörvar og Andri Halls báðir með 4 mörk. Markvarslan var góð en Sebastian varði 14/1 skot og Ástgeir 10 skot. Markahæstur gestanna var Ingimundur Helgason með 5 mörk.

Að loknum leik Selfoss og Aftureldingar 2 áttust við lið Árborgar og HK. HK-ingar höfðu sigur 17 - 42.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta