Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

21.10.2009 | Handboltaakademía

Góđ helgi hjá 3. flokki

Á laugardaginn síðasta kom KA í heimsókn á Selfoss með liðin sín tvö og léku þau við Selfoss-92 og Selfoss-93. Jafntefli varð í leik 92-liðsins, en 93-strákarnir unnu sinn leik 33-24.

Fyrst lék 92-liðið og var þar um hörkuleik að ræða. Endaði leikurinn með jafntefli 35-35 eftir að KA hafði leitt með einu marki í hálfleik 15-16. Okkar menn voru alltaf á eftir, en náðu með mikilli baráttu alltaf að jafna. KA komst mest í fimm marka mun en Selfyssingar gáfu sig ekki og náðu að knýja fram jafntefli.
Anton lék vel í liði heimamanna og gerði 11 mörk, Einar gerði 9, Magnús 5, Þorgeir 4, Jóhann Gylfi 3, Ingvi 1, Árni Felix 1 og Björn 1. Þá varði Axel 15 skot í leiknum.
Allir léku vel og gáfu allt sitt í leikinn og skein það úr andliti hvers leikmanns að þeir væru að spila til að sýna hvers megnugir þeir væru. Næsti leikur þeirra er fimmtudaginn 22. október gegn ÍR á útivelli. Nú er um að gera að halda áfram og bæta sig.

93-strákarnir unnu KA örugglega í sínum leik 33-24 og leiddu 14-11 í hálfleik. Selfoss var mun sterkari aðilinn í leiknum og léku vel lengstum. Sterk vörn og góð markvarsla skóp sigurinn og er þetta lið í mikilli sókn. Jói Erlings gerði 9 mörk, Janus 6, Jói Jóns 5, Árni Geir 4, Gabríel 4, Gísli Þór 3 og Daníel 2.
Siggi varði 19 skot og Bogi 14


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta