Í gærkvöld sóttu strákarnir í 92-liðinu ÍR-inga heim. Heimamenn eru ávallt erfiðir og mátti því búast við hörkuleik. Sem og varð svo raunin.
Leikurinn byrjaði þó afar illa fyrir okkar pilta. Menn voru engan veginn tilbúnir og heimamenn gengu á lagið og náðu fljótlega fimm markforskoti. Selfoss náði að minnka muninn í tvö mörk en ÍR jók muninn aftur í fimm mörk í hálfleik. Þá stóðu leikar 15-10.
ÍR byrjaði seinni hálfleikinn með tveimur mörkum og komust þar með í sjö marka forystu. Aftur komu okkar menn til baka og minnka muninn í tvö mörk og gátu vel gert eitthvað meira. Hins vegar fóru menn illa með fjölmörg dauðafæri og því komust þeir ekki nær. Lokatölur 28-25 fyrir ÍR sem er sorglegt því okkar menn hefðu vel geta unnið leikinn hefðu þeir byrjað hann á réttum tíma.
Krafturinn, leikgleðin, eldmóðurinn og grimmdin sem einkenndi sama lið um síðustu helgi vantaði og verða menn að líta í eigin barm hvað það varðar.
Tölfræði:
Ingvi 6 mörk, 10 brotin fríköst
Anton 6 mörk, 4 stoðsendingar
Einar 5 mörk, 7 stoðsendingar
Ketill 5 mörk
Jóhann Gylfi 1 mark, 12 brotin fríköst
Árni Felix 1 mark
Magnús 1 mark
Axel varði 18 skot í markinu
