Stjórn Verkefnasjóðs HSK tilkynnti nýlega úthlutun úr sjóðnum í ár. Alls bárust 63 umsóknir til sjóðsins og af þeim fengu 55 úthlutað styrk. Umf. Selfoss sendi inn 29 umsóknir og fengu 26 styrk. Góður fengur er í stuðningi verkefnasjóðsins sem kemur sér vel fyrir félög og einstakar deildir þegar kreppir að á auglýsinga- og styrkjamarkaði.
Í reglugerð um sjóðinn segir m.a. Tilgangur sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf á sambandssvæði Hérðassambandsins Skarphéðins. Sjóðurinn veitir ekki styrki til mannvirkjagerðar. Að öðru leyti fer úthlutun úr sjóðnum eftir mati stjórnar sjóðsins. Stjórn Verkefnasjóðs HSK skipa formaður, gjaldkeri og ritari HSK.
Samtals var úthlutað 1.619.000 kr. úr sjóðnum í ár. Einstakar deildir innan Umf. Selfoss fengu samtals eftirfarandi styrki: Fimleikadeild 70.000 kr., frjálsíþróttadeild 65.000 kr., handknattleiksdeild 167.500 kr., júdódeild 12.500 kr., knattspyrnudeild 314.500 kr., sunddeild 25.000 kr.,taekwondodeild 25.000 kr. og aðalstjórn 25.000 kr.
