Leikurinn byrjaði hræðilega fyrir Selfoss. Eftir aðeins 6 mínútur var staðan orðin 1 - 6 fyrir gestina sem komu mjög ákveðnir til leiks. Hægt og sígandi spiluðu strákarnir okkar sig þó inn í leikinn og var staðan orðin 10 - 11 í hálfleik. Síðari hálfleikurinn byrjaði heldur ekki vel og komst Víkingur fljótlega aftur í þriggja marka forystu sem hélst allt þar til í stöðunni 14 - 17. Þá hrökk Selfossliðið aftur í gang og komst yfir í fyrsta skipti í leiknum 19 - 18. Eftir það héldu okkar menn frumkvæðinu til loka og unnu góðan tveggja marka sigur í mikilvægum leik.
Varnarleikur liðsins var mjög góður að þessu sinni enda fékk vörnin á sig 6 mörk í byrjun en svo aðeins 14 mörk hinar 54 mínútur leiksins. Á kafla í síðari hálfleik náðu Mikalonis og Baldur að loka vörninni á löngum kafla.
Sóknarleikur liðsins var mjög slakur enda vantaði Ívar, Helga og Kúlda að þessu sinni. Fyrir vikið myndaðist mikið óöryggi og hik í allar sóknaraðgerðir liðsins enda leikstjórnunin lítil sem engin. Einstaklingsframtak og agaleysi voru einkennandi. Mikið var um tapaða bolta og þá voru færin illa nýtt. Þó má segja að markvörður Víkinga hafi átt sannkallaðan stórleik, en hann varði um 25 skot í leiknum. Ragnar stóð algerlega upp úr hjá Selfossi og dró vagnin að fyrir liðið í þessum leik. Aðrir geta miklu betur.
Þegar upp er staðið þá er mikilvægur sigur í höfn þrátt fyrir dapran sóknarleik. En það var varnarleikurinn sem kláraði verkefni dagsins að þessu sinni.
Markaskor Selfoss:
Ragnar 10
Atli 5
Matti 1
Hörður 1
Sjóli 1
Guðni 1
Eyþór 1
Atli Hjörvar 1
Árni Steinn 1
Sebastian varði 17 skot þar af 1 víti
Ástgeir kom inná í 1 víti en tókst ekki að verja.
Næsti leikur Selfoss er gegn Þrótti í Vallaskóla föstudaginn 6. nóvember kl. 19:30.
