Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

26.10.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Hauka á heimavelli

Selfoss - Haukar: 35 - 31 (16 - 21)

Haukar byrjuðu leikinn mun betur en okkar menn og voru fljótir að ná góðum tökum á leiknum. Andleysi Selfossliðsins í vörn var í hámarki og þá var sóknarleikurinn slakur, en í liðið vantaði leikstjórnandann Óskar Kúld. Haukar náðu mest 8 marka forskoti í hálfleiknum. Með smá kipp í lok fyrri hálfeiksins náðu þeir þó að minnka muninn í 5 mörk. Staðan í hálfleik var 16 - 21.

Það var allt annað Selfosslið sem mætti til leiks í seinni hálfleik. Búið var að breyta um varnaraðferð og þá var líka komin barátta í liðið. Í kjölfarið kom svo markvarslan líka. Smátt og smátt gáfu Haukarnir eftir og okkar menn unnu sig hægt og bítandi inn í leikinn og náðu frumkvæðinu þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Niðurstaðan varð svo 4 marka sigur á mjög sterku Haukaliði 35 - 31.

Ekki verða einstakir leikmenn teknir út hér hvort sem það á við um hinn slaka fyrri háfleik eða hinn frábæra seinni hálfleik. Menn standa og falla sem lið og það sannaðist svo sannarlega í þessum leik. Allir leikmenn lögðu sitt af mörkunum til að ná þessum mikilvæga sigri liðsins í toppbaráttunni í 2. flokki. Liðið sýndi frábæran karakter þrátt fyrir slæma stöðu og þeir sýndu svo sannarlega að þeir hugsa eins og sigurvegarar.


Næsti leikur í 2. flokki A-liði er á Akureyri þann 7. nóvember. En í kvöld spilar B-liðið gegn Stjörnunni á útivelli sem er með eitt besta liðið í 2. deild. Við óskum þeim góðs gengis í kvöld.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta