Síðuritari hafði fyrir nokkru síðan samband við einn af okkar ungu leikmönnum, örvhenta hornamanninn Árna Stein Steinþórsson. Var hann svo almennilegur að svara nokkrum spurningum varðandi handboltamál. Síðuritari hafði einnig samband við Arnar Gunnarsson sem þjálfað hefur drenginn í nærri sex ár og spurði hvað honum þætti um Árna Stein.
Arnar sagði Árna vera afar metnaðarfullan leikmann sem ætlaði sér langt í grein sinni. Kvað hann Árna hafa æft afar vel og markvisst í sumar og það hafi skilað sér. Arnar er sannfærður um að Árna takist að upplifa drauma sína slái hann hvergi slöku við. „Árni hefur bætt sig mikið í skotum og er orðinn mun fjölbreyttari hvað þau varðar. Einnig er hann orðinn betri varnarmaður og hefur góðan leikskilning. Hann hefur í raun allt nema líkamlegan styrk sem unnið verður í, enda er drengurinn aðeins 17 ára".
Hér að neðan eru svo spurningar og svör Árna:
Hvernig upplifun var það að taka þátt í landsliðsverkefninu í sumar á Partille?
- Það er náttúrulega markmið hjá öllum leikmönnum að komast í landsliðið, hvort sem það er unglingalandslið eða A-landsliðið þannig að fá tækifæri til þess er náttúrulega frábært. Ég öðlaðist mikla reynslu þarna úti og lærði margt nýtt auk þess sem að þetta var bara skemmtilegt.
Hver eru svo þín markmið héðan af varðandi landsliðið?
- Það er auðvitað markmið að fá fleiri tækifæri með landsliðinu og ætla ég að gera mitt besta til að nýta þau tækifæri sem ég fæ.
Hvernig líst þér á komandi vetur hjá Selfossi?
- Mér líst bara mjög vel á komandi tímabil. Undirbúningstímabilið hefur gengið vel og hópurinn er vel samstilltur og góður mórall. Og á góðum móral og baráttu er hægt að komast langt. Menn höfðu einhverjar áhyggjur af því að nokkrir fastamenn í mfl fóru í sumar en fyrir mér kemur bara maður í manns stað og ég tel að við séum með leikmenn sem eru nógu góðir til að fylla þessi skörð.
Veturinn hjá 2.fl lofar góðu enda erum við með hörkumannskap og að fá sér æfingatíma með 2.fl á bara eftir að gera okkur gott.
Gerir þú þér vonir um einhvern spiltíma í meistaraflokki?
- Ég setti mér markmið fyrir tímabilið og eitt þessara markmiða var að nýta öll tækifæri sem ég fæ með meistaraflokk og það ætla ég mér að gera. Hvort ég fái tækifæri er bara undir Basta komið en ég geri mitt besta ef ég fæ séns.
Fer Selfoss upp um deild í vor?
- Já bókað mál.
Hvar sérðu þig fyrir þér eftir 10 ár í handbolta? Áttu einhverja drauma eða einhver markmið?
- Auðvitað vilja allir ná langt í því sem þeir gera. Mér dreymir um að spila erlendis í framtíðinni og ég vona að eftir 10 ár verði ég í Þýskalandi að gera það gott.
- Það er frábært að vera partur af þessari uppbyggingu á Selfossi og er stór draumur að sjá Selfoss í úrvalsdeild.
Þú ert á lokaári í akademíu Selfoss handbolta. Er eitthvað sem þú getur sagt um hana? Myndir þú mæla með henni fyrir ungt fólk á uppleið?
- Já ég mæli með því að menn skelli sér í akademína. Hún heldur vel utan um mann og passar að maður fari ekki í neitt rugl, hvort sem það er í námi eða gagnvart áfengi og tóbaki. Svo auðvitað lærir maður þvílíkt mikið um handbolta og er einnig í mjög góðum félagsskap.
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
