Ragnar Jóhannsson er í viðtali á heimasíðunni í þesari viku. Ragnar er 19 ára unglingalandsliðsmaður. Hann lék með pressuliðinu gegn íslenska A-landsliðinu í siðustu viku og stóð sig mjög vel, skoraði 3 mörk með þrumuskotum og var hvergi banginn við stjörnurnar í landsliðinu.
Hvernig hefurðu það eftir sumarið ? Ég hef það bara mjög gott. Hef aldrei verið í betra formi og líður mjög vel.
Hvað finnst þér þátttaka í landsliði fyrir Íslands hönd gefa þér ? Að fá að spila með landsliði fyrir Íslands hönd hefur gefið mér gríðalega mikið og ég hef bætt mig og þroskast mikið sem leikmaður. Ég hef verið það lánsamur að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í U19 ára landsliðinu frá upphafi og það er ómetanleg reynsla.
Lýstu því fyrir okkur upplifunina að leika gegn fullu húsi af trylltum Túnisbúum: Það var gríðarlega spennandi verkefni að takast á við Túnisana á þeirra eigin heimavelli í undanúrslitunum á HM. Við byrjuðum illa og lentum nokkrum mörkum undir, en náðum svo að spila okkar leik og þá kláruðum við þá. Þegar við löbbuðum inná völlinn var hver og einn einasti maður í húsinu sem púaði á okkur. Í þjóðsöngnum var gert ýmislegt til þess að reyna að taka okkur úr sambandi eins og t.d. að púa og skotklukkan var sett í gang. Hávaðinn var það mikill í höllinni meðan á leiknum stóð að maður gat ekki talað við manninn sem stóð við hliðin á manni og mér var hreinlega illt í eyrunum. En þegar leiknum lauk og úrslitin voru ráðin stóðu áhorfendurnir upp og klöppuðu fyrir okkur. Það var mjög góð tilfinning. Þessi leikur er eins og 1000 handboltaæfingar því maður lærir svo mikið og ég mun klárlega muna eftir honum alla ævi.
Hvað fór úrskeiðis að þínu mati í úrslitaleiknum í Túnis gegn Króötum ? Við vorum klárlega ekki komnir með nóg þegar við mættum í úrslitaleikinn. Það sem fór úrskeiðis að mínu mati var það að við leyfðum Króötunum að spila sinn leik og þeir réðu ferðinni og spiluðu mjög hægan handbolta. Okkar leikur er þannig að við viljum spila hratt, en þeir lokuðu á það. Í lok fyrri hálfleiks náðum við að spila okkar leik og þá vorum við með þá, en það var bara ekki nóg.
Hver svo stefnan héðan í frá, með landsliðinu og svo þín eigin markmið ? Næsta skref í landsliðinu er auðvitað að vinna næsta stórmót. Mín markmið eru þau að bæta mig sem handboltamann líkamlega og andlega og verða að sjálfsögðu bestur.
Ertu bjartsýnn fyrir komandi tímabil með Selfossi ? Já ég er mjög spenntur fyrir tímabilinu og held að liðinu eigi eftir að ganga mjög vel.
Fer liðið upp í vor ? Já, liðið fer klárlega upp í vor!
Nú ert þú einn af þremur sem útskrifaðist úr akademíu Selfoss handbolta. Getur þú sagt eitthvað um hana? Er þetta eitthvað sem þú gætir mælt með fyrir unga drengi í handbolta? Handboltaakademían er mjög góður skóli fyrir unga handboltamenn sem vilja ná langt. Ég lærði rosalega mikið í akademíunni sem ég hef verið að nota og það hefur allt skilað sér. Í akademíunni gafst meiri tími til að æfa tæknilegu atriðin sem er miklu erfiðara að æfa t.d. á venjulegum handboltaæfingum þar sem er fyrst og fremst verið að æfa fyrir leiki. Ég mæli eindregið með því að allir sem vilja ná langt í handbolta fari í akademíuna því hún hjálpar klárlega mjög mikið til.
