4. flokkur karla lék við Þrótt B í Laugardalshöllinni, en leikurinn var í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í 4. flokki. Yfirburðir Selfoss voru miklir og unnu þeir að lokum 39-13 sigur. Drengirnir eru því komnir í 16-liða úrslit bikarsins og þurfa núna þrjá sigra til viðbótar til í að komast í sjálfan bikarúrslitaleikinn.
Selfoss komst í 5-0 eftir fimm mínútna leik og voru úrslitin nánast ráðin um það leyti. Þeir bættu svo aðeins við muninn og leiddu 7-15 í hálfleik. Síðari hálfleikur var mun betri og vannst hann 24-6, en lokatölur urðu 13-39 sigur okkar manna.
Mikið var um hraðaupphlaup í leiknum auk þess sem Selfoss stillti ágætlega upp í sókn lengi vel. Þá var gaman að sjá leikmenn bregða sér í óhefðbundnar stöður og spila þar.
Næsti leikur þessara stráka er næstkomandi laugardag 7. nóvember. Þá koma Haukamenn í heimsókn og leika við Selfoss í Vallaskóla kl. 14:00. Fólk er eindregið hvatt til að mæta á leikinn en strákarnir eru staðráðnir í að standa sig vel í vetur og ætla að spila hörku bolta í Vallaskóla.
