Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

6.11.2009 | Handboltaakademía

Selfoss vann Ţrótt í mfl. á heimavelli

Selfoss tók völdin strax í byrjun og voru fljótlega komnir í 7 - 1 og eftir það virtist leikurinn hreinlega búinnþ Þróttarar spiluðu hægar og leikurinn varð allur hinn rólegasti. Mikið var um innáskiptingar í liði Selfyssinga strax eftir 15 mínútur og fengu allir að spreyta sig. Staðan í ha´fleik eins og áður segir 21 - 10 fyrir heimamenn. 

Allar  væntingar um að seinni hálfleikur yrði framhald á þeim fyrri fór fyrir lítið eftir 10 mínútur í seinni hálfleik höfðu Þróttarar skorað 4 mörk á móti 2. Fljótlega hrökk þó Selfoss liðið aftur í smá gír og jók muninn lítilega aftur fyrir leikslok svona til þess að vinna seinni hálfleikinn líka.

Varnarleikurinn hefur verið aðall liðsins það sem af er keppnistímabilsins en það segir þó sína sögu að Þróttarar hafa hingað til skorað flest mörk þeirra liða sem Selfoss hefur spilað við eða 22. Vonandi að menn verði á tánum þegar þeir mæta hinu gríðarlega sterka liði Aftureldingar á þriðjudaginn. Þá var markvarslan í lagi í kvöld en markverðir liðsins þeir Sebastian og Ástgeir vörðu 20 skot sem gerir rétt tæplega 50% markvörslu. 

Sóknarleikur liðsins er þó enn að koma til en liðið saknar þeirra Ívars og Helga sem mest hafa spilað sem leikstjórnendur á undirnbúningstímabilinu. Þeir eru enn frá vegna meiðsla eins og Einar og Sveinbjörn sem báðir eru línumenn. Atli Hjörvar stóð því vaktina einn á línunni í dag.

Liðið á gríðarlega þétt prógram framundan og erfiða leiki þannig að það var gott að geta skipt mikið inná í kvöld til þess að dreifa álaginu. Margir ungir leikmenn voru að fá mikið af spiltíma og stóðu sig vel. Árni Steinn sem er einn þeirra var valinn maður leiksins hjá Selfoss í leikslok og fékk að launum gjafabréf hjá heilsulindinni á Hótel Selfoss. Þá var gaman að sjá gamla manninn Sebastian í síðari hálfeik en hann var augljóslega ósáttur við fyrri hálfleikinn hjá sér. Hann nánast lokaði markinu í upphafi síðari hálfleiks og varði þá 10 skot á þeim 16 mínútum sem hann spilaði. Þegar hann fór útaf þá kom Ástgeir inná og varði 5 til viðbótar. Þrátt fyrir þessa fínu markvörslu þá skoruðu Þróttarar meira í síðari hálfleik en í þeim fyrri þegar Sebastian varði aðeins 5 skot.

Þá verð ég að segja að liðið mætti sýna aðeins meiri gleði inná vellinum svo að við áhorfendur upplifum það með liðinu að það sé gaman í handbolta.

Markaskorarar Selfoss:
Árni Steinn Steinþórsson  8
Ragnar Jóhannsson  7
Hörður Másson  5
Atli Kristinsson  5
Ársæll Ársælsson  2
Matthías Halldórsson  2
Atli Hjörvar Einarsson  2
Eyþór Lárusson  2
Hörður Bjarnarson  1
Guðni Ingvarsson  1

Sebastian Alexandersson varði 15 skot
Ástgeir Rúnar Sigmarsson varði 5 skot

Markaskorarar Þróttar:
Friðgeir Elí Jónasson  8
Ingólfur Axelsson  4
Brendan Þorvaldsson  3
Sigtryggur Kolbeinsson  2
Styrmir Sigurðsson  2
Arne Karl Wehmeier  1
Runólfur Jónasson  1
Viktor Bjarnason  1

Því miður fékkst ekki uppgefið hvað Þórður Þórðarson varði í leiknum en líkleg ágiskun er um 12-14 varin skot.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

  • Ragnarsmótið 2010:

HK - FH 35 : 32 
Haukar - Fram 31 : 24
HK - Selfoss 30 : 31
Haukar  - Valur 23 : 17
Selfoss - FH 26 : 25
Fram -  Valur 25 : 29
1.-2. sæti:          
Selfoss - Haukar 34 : 32
3.-4. sæti:       :  
HK - Fram 38 : 34
5.-6. sæti:          
FH - Valur 24 : 23

Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK

byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta