Fyrsti heimaleikur A-liðs 4. flokks karla fór fram í Vallaskóla í dag. Hátt í 100 manns mættu á leikinn sem var vel leikinn af hálfu Selfoss. Strákarnir höfðu yfirhöndina nær allan leikinn og unnu að lokum góðan 32-25 sigur eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik. Liðið fer því vel af stað á heimavelli í vetur.
Selfyssingar mættu með mjög gott hugarfar í leikinn og komust strax yfir. Þeir leiddu lengst af í fyrri hálfleik, en munurinn varð þó aldrei meiri en 2 mörk. Selfoss átti nokkra möguleika á að bæta við þann mun, en náðu ekki að hrista Haukana af sér. Undir lok fyrri hálfleiks komust Haukar svo yfir en sú forysta hélst stutt því Selfoss skoraði seinustu tvö mörk fyrri hálfleiks og leiddi 14-13 í hálfleik.
Selfoss skoraði mörg mörk úr hröðum upphlaupum í fyrri hálfleik og gaman var að sjá þann þátt hjá liðinu. Liðið hafði leikið fína vörn í fyrri hálfleik en vandamálið var að klára hana. Gestirnir náðu oft að skora full ódýr mörk eftir að Selfoss hafði staðið í um mínútu í vörn. Það vantaði bara að klára dæmið.
Í síðari hálfleik kláruðu Selfyssingar leikinn með frábærri byrjun, en fyrstu fimm mörkin voru Selfyssinga og staðan þá orðin 19-13. Góð vörn og mikið af hraðaupphlaupum skilaði þeirri forystu. Haukar náðu aldrei að komast nálægt Selfossi eftir þetta og lokatölur urðu öruggur 32-25 sigur okkar manna.
Selfoss lék góða vörn lengst af í leiknum og eiga þeir henni sigurinn að þakka. Haukar þurftu að hafa mikið fyrir flest öllum mörkum sínum í leiknum. Gríðarlega mikið af hraðaupphlaupum komu í kjölfarið á vörninni sem og seinni bylgju mörk. Þá spilaði liðið saman í sókninni sem lið og enduðu flestar sóknir með góðum færum.
Næsti leikur liðsins er eftir viku. Það sem einkenndi liðið í dag eru akkúrat hlutirnir sem þurfa að vera til staðar til þess að árangur náist. Strákarnir léku saman sem lið og lögðu sig alla fram. Góð stemning var í liðinu sem og jávæðni og leikgleði. Þeir mættu með góðu hugarfari til leiks og ætluðu sér að vinna hann. Þetta eru hlutir sem byggja þarf á.
