Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

9.11.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur tapađi á Akureyri

Umsögn þjálfara liðsins um leikinn:

Akureyri var betra liðið að þessu sinni og því sigur þeirra sanngjarn. Það voru bara of margir lykilmenn hjá okkur sem náðu sér ekki á strik að þessu sinni. Þá fékk Raggi rautt spjald á 20. mín. fyrri hálfleiks, en þá hafði hann skorað 7 mörk það sem af var leiks og það munar auðvitað um hann í sókninni þegar hann er í þessum ham. Það eina sem var jákvætt við leikinn er að við vorum að spila við eitt besta lið landsins og spiluðum frekar illa en samt vinna þeir ekki stærri sigur en þetta. Mér finnst það sýna í hve háum gæðaflokki liðið er í dag. Fyrir 2-3 árum hefðum við tapað þessum leik stórt.  

Varðandi það hvernig leikurinn þróaðist þá vorum við í raun að elta allan leikinn. Þeir höfðu alltaf frumkvæðið. Í hvert skipti sem þeir hikstuðu sá Oddur um að draga þá í gegnum það. Við réðum ekkert við hann í leiknum. Þá áttum við líka í miklum erfiðleikum með línumanninn þeirra. Mestur varð munurinn þegar Akureyri komst í 27 - 21, en þá náðum við okkur á strik í 10 mín. og jöfnuðum leikinn 27 - 27. Ég er sannfærður um það að ef við hefðum unnið boltann í þeirri stöðu og komist yfir þá hefðum við unnið leikinn en það tókst ekki og leikurinn tapaðist. Þannig er það bara. Siggi Már, Einar, Helgi og Sæli áttu allir mjög góða innkomu af bekknum. Af byrjunarliðinu voru það bara Sveinbjörn og Raggi sem náðu sér á strik en aðrir leikmenn voru mislangt frá sínu besta.  

Tölfræði:
Raggi  7 úr 9, 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 1 frákast, 1 fengið víti og 3 brotin fríköst
Siggi Már  6 úr 9, 2 stoðs. og 1 fengið víti
Sjóli  5 úr 12, 2 stoðs., 4 tapaðir boltar, 1 bolta náð, 1 frákast, 1 varið skot og 3 brotin fríköst
Árni Steinn  4 úr 10, 2 tapaðir boltar og 1 brotið fríkast
Sæli  3 úr 4 og 1 frákast
Sveinbjörn  3 úr 3, 1 frákast og 2 brotin fríköst
Einar  2 úr 3, 2 fráköst, 3 fengin víti og 6 brotin fríköst
Andri Már  1 úr 1, 1 tapaður bolti, 2 fengin víti og 1 brotið fríkast
Eyþór  0 úr 3, 1 stoðs., 1 tapaður bolti og 1 brotið fríkast
Kúldi  0 úr 1, 3 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 fengið víti og 10 brotin fríköst
Ástgeir varði 2 skot (15%)
Helgi varði 18/1 skot (45%)


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta