Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

9.11.2009 | Handboltaakademía

3. flokkur B-liđ vann ÍBV á heimvelli

Í Eyjum spiluðu bæði liðin góða sókn og mikið var skorað. Að þessu sinni náðu bæði liðin að spila betri vörn enda markaskorið undir 30 hjá báðum liðum. Skyttur ÍBV sem fóru mikinn í leiknum í Eyjum náðu sér ekki á strik og fundu þeir ekki leiðina í gegnum vörnina að þessu sinni. Þá náðu okkar strákar að skora þó nokkuð úr hraðaupphlaupum og voru þau mörk dýrmæt þegar upp var staðið.

B-liðið sem er að skipað leikmönnum á yngra ári 3. flokks og leikmönnum úr 4. flokki er búið að standa sig vel í haust og eru nú eftir 6 leiki með 4 sigra og 2 töp og eru með 11 mörk í plús. Reyndar eru nokkur A-lið í deildinni sem verður erfitt að eiga við en þessir strákar eru duglegir og hafa mikinn áhuga þannig að ef þeir ná að læra af vetrinum og bæta sig þá verður framhaldið skemmtilegt hjá þeim.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta