Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

10.11.2009 | Handbolti

B-liđ 4. flokks tapađi í bikar

Strákarnir í B-liði 4. flokks mættu Gróttu í bikarnum um helgina. Selfoss liðið náði sér aldrei á strik í leiknum. Frá fyrstu mínútu voru okkar menn langt frá sinni eðlilegu getu. Í sókninni vantaði alla ákveðni og leikmenn virkuðu smeykir. Varnarlega var liðið afar lengi í gang.

Grótta var 16-4 yfir í hálfleik. Selfoss reyndi að bæta leik sinn í síðari hálfleik og eftir því sem á leið í þeim hálfleik var alltaf betra og betra að sjá til liðsins. Lokatölur urðu svo 30-12 sigur Gróttu.

Strákarnir fengu erfiða kennslu í þessum leik og vonandi að þeir læri af honum. Þeir mættu ekki klárir í leik, voru smeykir, óákveðnir og þorðu ekki að gera mistök. Þá var einbeiting sáralítil og skilaði þetta allt sér í gríðarlegum fjölda bolta glataðra í leiknum. Þegar svo í síðari hálfleik að liðið fór að horfa á markið og vera klókara gekk mun betur. Varnarlega bætti liðið sig í síðari hálfleik sérstaklega undir lok leiksins.

Handboltaleg geta strákanna er engan veginn í samræmi við úrslit þessa leiks. Sem betur fer fær liðið fljótt aftur tækifæri til að sýna sitt rétta andlit en strax um næstu helgi er leikur.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta