Það er best að byrja á byrjuninni. Það var ljóst strax í upphafi leiks að Selfoss var mætt í þennan leik til að vinna hann. Okkar menn náðu frumkvæðinu strax og héldu því næstu 59 mínútur og 57 sekúndur. Já heimamenn komust í 2-1 og svo voru þeir næst yfir í lokin 26-25. Varnarleikur Selfoss var frábær allan leikinn og fyrir aftan hana var Sebastian í stuði. Okkar strákar leiddu mestan hluta fyrri hálfleiks með 1-3 mörkum en enduðu hálfleikinn illa og misstu stöðuna í 11-11 úr 11-8. Það var ekkert að angra menn og byrjuðu okkar menn seinni hálfleikinn eins og þann fyrri. Selfoss komst fljótlega aftur í það að leiða með 2-3 mörkum og réðu alveg ferðinni í leiknum. Það leit allt út fyrir að Selfoss myndi landa þessum mikilvæga sigri en þegar það voru 5 mínútur eftir og Selfoss með 3 marka forystu þá tók þjálfari UMFA leikhlé og kom mjög framarlega á völlinn með sitt lið. Til að byrja með breytti það engu. Selfoss hélt sinni 3 marka forystu um stund og þegar rétt innan við 3 mínútur voru eftir þá var enn 3 marka munur á liðunum og Selfoss með boltann. Þá byrjar þessi ótrúlegi kafli leiksins.
Byrjar allt með því að Óskar Kúld kemst í gegnum vörnina og það er augljóslega brotið á honum en ekkert er dæmt. UMFA fær boltann og ná skoti á markið sem Sebastian ver en boltinn lekur inn í markið. Selfoss fer í sókn og missir hann eftir aðeins nokkrar sekúndur vegna þess að allir leikmenn liðsins virðast hreinlega frjósa og Óskar Kúld finnur engan til að gefa á og fær dæmda á sig leiktöf. UMFA missir boltann og Selfoss fær aðra sókn. Aftur eru allir leikmenn liðsins staðir og Selfoss missir boltann án þess að ná skoti á markið og aftur eftir stutta sókn. UMFA fær boltann og sækja hratt. Selfoss nær að stoppa sóknina en þá kemur vendipunkturinn. Ragnar er rekinn útaf fyrir mjög litlar sakir og líklega er það rangur dómur og dýr. Munurinn 2 mörk og rétt rúmar 2 mínútur eftir. UMFA skorar einum fleiri en naumlega þó því að Sebastian ver boltann inn í markið. Munurinn orðinn 1 mark og rétt rúm mínúta eftir. Aftur missir Selfoss boltann án þess að ná skoti á markið. UMFA kemst í sókn og nær að skora. Selfoss fer í sókn og staðan jöfn og 40 sekúndur til leiksloka. Í þetta skipti ná þeir að spila og fá fríköst. Raggi kemur inná þegar 12 sekúndur eru eftir. Hendin er ekki kominn upp og Selfoss með boltann. Loka atlagan gerð en leikmaður UMFA kemst inn í sendingu og nær boltanum. Hann sækir upp völlinn en á meðan hann er að rekja boltann þá verður honum það á að grípa hann með hendinni sem hann er að rekja með. Dómarinn sér það ekki þar sem hann er á blindu hliðinni og því ekkert dæmt. Atli nær að stöðva hann og fær rautt spjald fyrir. Þrjár sekúndur eftir og fríkast. Einhverra hluta vegna þá færir dómarinn fríkastið fram um heila 3 metra frá staðnum þar sem Atli braut af sér ? UMFA nær skoti á markið sem syngur nánast í samskeytunum. Sebastian sá aldrei boltann og sigur UMFA staðreynd. Hvað á maður að segja ? Að hluta til klaufaskapur, að hluta til óheppni og að hluta til reynsluleysi ? Við spurðum Sebastian að því hvað hafði gerst:
"Þetta var lygilegt. Við erum betri aðilinn í leiknum nánast allan leikinn. Við stjórnuðum leiknum og okkar leikskipulag gekk algjörlega upp. Við lögðum upp með að leyfa þeim skjóta á markið fyrir utan og útispilararnir þeirra voru ekki með góða nýtingu þrátt fyrir mörg mörk. Þá voru ein 7 eða 8 skot sem ég varði inn í markið og skrifast þau því á mig. Það má því að lang mestu leiti skrifa þetta tap á mig. Ég er eðlilega ryðgaður enda ekki spilað reglulega í nokkur ár. þetta er allt að koma hjá mér og ég á ekki von á því að svona boltar fari inn þegar líður á veturinn. Hins vegar þá verður að viðurkennast að það er óásættanlegt af okkar hálfu að klára ekki þessa stöðu sem kemur upp í lokin. Þessi leikur í gær minnir mig óþægilega á leikina tvo við Gróttu í fyrra þar sem við lendum í því að missa niður unnin leik í eitthvað dramtískt rugl án þess að ná einu sinni skoti á markið í lokin. Þeir leikmenn sem lærðu þessa erfiðu lexíu í fyrra fóru flestir frá okkur í sumar. Einu 2 leikmennirnir sem lentu í þessu í fyrra eru Raggi sem var útaf með 2 mín. og Atli sem var klipptur alveg út en restin af leikmönnunum var að lenda í þessari stöðu í fyrsta skipti í miklum hávaða fyrir fram 500-600 manns. Það er hundfúlt að vera alltaf að búa til nýtt lið og að þurfa að tapa svona leikjum á hverju ári vegna þess að það eru alltaf nýliðar að spila leikina. Auðvitað hefðum við leyst þessa stöðu ef Helgi eða Ívar hefðu verið með enda menn sem hafa oft verið í þessari stöðu áður. En það þýðir ekkert að tala um það. Meiðsli eru partur af þessu sporti og maður notar þá leikmenn eru til staðar hverju sinni."
Markaskorarar og markvarsla Selfoss:
Atli 10
Ragnar 8
Árni Steinn 5
Atli Hjörvar 1
Sigurður Már 1
Sebastian varði 19 skot
Engu að síður var þetta góður leikur og skemmtilegur hjá okkar mönnum. Næst er það ÍBV á laugardaginn og annar stórleikur í vændum. Næsti heimaleikur þar á eftir er einnig stórleikur, en þá kemur ÍR í heimsókn þann 20 nóv.
Áfram Selfoss
